|
|||
2009-06-19 18:43:44 CEST 2009-06-19 18:44:44 CEST REGULATED INFORMATION Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. - Fyrirtækjafréttir- Frjálsi fjárfestingarbankinn hf. sækir um slitameðferðStjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. hefur í dag sótt um slitameðferð til Héraðsdóms Reykjavíkur með vísan til 3. tl. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 44/2009, um breytingu á lögum nr. 161/2002, um fjármálafyrirtæki, með síðari breytingum. Þann 21. mars 2009 ákvað Fjármálaeftirlitið að taka yfir vald hluthafafundar SPRON hf., móðurfélags Frjálsa fjárfestingarbankans, og víkja félagsstjórn SPRON frá í heild sinni. Jafnframt skipaði Fjármálaeftirlitið skilanefnd (nú bráðabirgðastjórn) fyrir SPRON, sem tók við öllum heimildum stjórnar félagsins skv. ákvæðum laga nr. 2/1995, sbr. 100. gr. a. laga nr. 161/2002, sem þá var í gildi. Bráðabirgðastjórn SPRON hefur frá því hún var skipuð unnið að því að framkvæma ákvarðanir Fjármálaeftirlitsins og gætt að því að varðveita eignir samstæðu félagsins og endurskipuleggja rekstur þess með hagsmuni kröfuhafa að leiðarljósi. Eftir að bráðabirgðastjórn SPRON var skipuð tók hún yfir stjórn Frjálsa fjárfestingarbankans hf. og hefur unnið að endurskipulagningu starfseminnar miðað við breyttar forsendur. Ljóst er að félagið uppfyllir ekki lengur skilyrði laga fyrir áframhaldandi rekstri sem fjármálafyrirtæki og telur stjórn félagsins nauðsynlegt að óska eftir slitum á félaginu í samræmi við lög nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki |
|||
|