|
|||
2017-12-20 16:31:00 CET 2017-12-20 16:31:01 CET SÄÄNNELTY TIETO Lánamál ríkisins - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur KauphallarinnarUppkaup ríkisbréfa RIKH 18 1009Ákveðið hefur verið að halda ekki útboð á ríkisbréfum föstudaginn 22. desember 2017. Þess í stað verða uppkaup kl. 10:30 til 11:00 með tilboðsfyrirkomulagi. Ríkissjóður býðst til að kaupa til baka óverðtryggð bréf í flokknum RIKH 18 1009 sem er með lokagjalddaga 9. október 2018. Tilgangur uppkaupanna er að minnka stærð flokksins sem nú er um 87 ma.kr. og draga þar með úr endurfjármögnunaráhættu ríkissjóðs á lokagjalddaga flokksins. Heildarfjárhæð samþykktra tilboða verður tilkynnt að loknum uppkaupum. Lánamál ríkisins áskilja sér rétt f.h. ríkissjóðs til að samþykkja öll tilboð sem berast, hluta þeirra eða hafna þeim öllum. Einungis aðalmiðlurum ríkisverðbréfa er heimilt að gera tilboð í uppkaupunum en þeir annast einnig tilboðsgerð fyrir fjárfesta. Lágmark hvers tilboðs er ein milljón króna að nafnvirði. Uppkaupunum verður þannig háttað að öll samþykkt tilboð bjóðast á innsendum verðum (e. multiple price auction method). Að öðru leyti er vísað í uppkaupsskilmála sem fylgja þessari frétt.
Greiðslu- og uppgjörsdagur er fimmtudagurinn 28. desember 2017.
Nánari upplýsingar veitir Oddgeir Gunnarsson, Lánamálum ríkisins, í síma 569 9635. |
|||
|