2017-12-22 16:58:28 CET

2017-12-22 16:58:37 CET


BIRTINGARSKYLDAR UPPLÝSNINGAR

Íslenska
Skeljungur hf. - Viðskipti félags með eigin bréf

Skeljungur hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun


Í 51. viku 2017, keypti félagið 4.996.200 eigin hluti fyrir 32.775.072 kr. eins
og hér segir:



Dagsetning   Tími   Keyptir hlutir Viðskiptaverð  Kaupverð

18.12.2017 09:34:25      4.996.200     6,56      32.775.072

   Samtals               4.996.200               32.775.072
-----------------------------------------------------------



Er hér um að ræða kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun
félagsins sem var hrint í framkvæmd 8. nóvember 2017, sbr. tilkynningu til
Kauphallar þann 7. nóvember 2017.

Skeljungur  hefur  nú  keypt  samtals  74.943.000 hluti í félaginu sem samsvarar
34,82% af  þeim eigin  hlutum sem  að hámarki  verða keyptir samkvæmt núgildandi
áætlun.  Kaupverð  hinna  keyptu  hluta  nemur  samtals  530.896.212 krónum  sem
samsvarar 75,84% af þeirri fjárhæð sem að hámarki verður keypt fyrir. Skeljungur
á nú samtals 74.943.000 hluti eða 3,48% af heildarhlutafé félagsins.

Samkvæmt  endurkaupaáætluninni verða að hámarki keyptir 215.203.185 hlutir, þ.e.
10% eigin fjár, en fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en 700 milljónir
króna.  Framkvæmd endurkaupaáætlunar lýkur þegar  öðru hvoru framangreindu hefur
verið náð eða á aðalfundardegi félagsins 2018. Endurkaupaáætlunin er framkvæmd í
samræmi við lög nr. 2/1995 um hlutafélög og viðauka við reglugerð nr. 630/2005.





Nánari  upplýsingar  veitir  Benedikt  Ólafsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs,
fjarfestar@skeljungur.is, s: 840-3071.


[]