|
|||
2016-08-24 18:51:22 CEST 2016-08-24 18:51:22 CEST REGULATED INFORMATION Reginn hf. - ÁrsreikningurÁrshlutareikningur Regins fyrstu 6 mánuði ársins 2016Árshlutareikningur Regins hf. 1. janúar 2016 til 30. júní 2016 var samþykktur af stjórn þann 24. ágúst. · Rekstrartekjur námu 3.222 m.kr. · Vöxtur leigutekna frá fyrra ári var 26%. · Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir var 2.126 m.kr., og jókst um 25% frá fyrra ári. · Bókfært virði fjárfestingareigna í lok tímabils er 79.015 m.kr. Matsbreyting á tímabilinu var 1.869 m.kr. · Hagnaður eftir tekjuskatt nam 2.002 m.kr. sem er aukning yfir 65% frá fyrra ári. · Handbært fé frá rekstri nam 924 m.kr. · Vaxtaberandi skuldir voru 47.767 m.kr. í lok tímabilsins samanborið við 39.474 m.kr. í árslok 2015. · Eiginfjárhlutfall er 34%. · Hagnaður á hlut fyrir tímabilið er 1,34 en var 0,85 fyrir sama tímabil í fyrra. Félagið er skráð í Kauphöll Íslands (NASDAQ OMX Iceland hf.), fjöldi hluthafa þann 30 júní sl. voru 559. Rekstur og afkoma Afkoma Regins á fyrri helmingi árs var góð og í samræmi við áætlun félagsins. Rekstrartekjur námu 3.222 m.kr. og þar af námu leigutekjur 2.946 m.kr. Hækkun leigutekna frá sama tímabili fyrra árs er rúmlega 26%. Rekstrarhagnaður fyrir söluhagnað, matsbreytingu og afskriftir / EBITDA var 2.126 m.kr. sem samsvarar 25% hækkun samanborið við sama tímabil árið 2015. Eignasafn og efnahagur Eignasafn Regins er fjölbreytt og samanstendur af góðu atvinnuhúsnæði með háu útleiguhlutfalli og traustum leigutökum. Fjöldi fasteigna í lok tímabilsins var 130 og heildarfermetrafjöldi þeirra eigna er um 319 þúsund. Útleiguhlutfall á safni Regins er yfir 97,5% miðað við þær tekjur sem 100% útleiga gæfi. Stærstu eignir Regins eru verslunarmiðstöðin Smáralind í Kópavogi og Egilshöll í Grafarvogi. Fasteignasafn Regins er metið á gangvirði í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Safnið er metið í lok hvers árs í tengslum við gerð ársreiknings sem og í lok hvers uppgjörstímabils. Matsbreyting á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 1.869 m.kr. Stækkun félagsins og horfur Uppbygging og stækkun eignasafns félagsins er í samræmi við áætlun og fjárfestingarstefnu þess. Á tímabilinu fékk félagið afhent tvö fasteignasöfn sem greitt var fyrir með ráðstöfun hlutafjáraukningar sbr. ákvörðun hluthafafundar frá 22. mars 2016 þar sem hlutafé í Reginn var aukið um 126.600.000 krónur að nafnverði. Hlutafé í Reginn eftir þá aukningu er 1.555.300.000 krónur að nafnverði. Auk framangreinds þá keypti félagið tvö lítil fasteignafélög sem eiga fasteignir á Akureyri. Bókfært virði þeirra fasteigna sem tilheyra framangreindum fjórum fasteignafélögum er um 11.400 m.kr. Á tímabilinu tilkynnti félagið um samkomulag við Kópavogsbæ og Smárabyggð ehf. um uppbyggingu sunnan Smáralindar á næstu árum. Aðkoma Regins er með þeim hætti að félagið er eigandi um 34% af byggingarétti verkefnisins í gegnum dótturfélag sitt. Eignarhlutur félagsins í Smárabyggð er færður til bókar sem nemur 805 m.kr. á tímabilinu. Þann 8. júlí sl. tilkynnti félagið um komu H&M í Smáralind 2017 og Hafnartorg 2018, en það eru fyrstu verslanir H&M á Íslandi. Miklar breytingar eiga sér stað í Smáralind en endurskipulagning hófst í byrjun árs. Verslanasamsetning mun breytast með endurskipulögðum rýmum í húsinu. Í rýmum 1. og 2. hæðar Norðurturns Smáralindar, sem Reginn hefur yfir að ráða, mun Íslandsbanki opna útibú sem og World Class opna líkamsræktarstöð í haust. Tjarnarvellir 11 hafa verið afhentir Þjóðminjasafninu þar sem er sérútbúin aðstaða fyrir safnið. Framkvæmdir eiga sér einnig stað í Hlíðasmára 1 þar sem Sýslumaðurinn á Höfuðborgarsvæðinu mun flytja starfsemi sína í haust. Horfur í rekstri og skipulagsbreytingar félagsins Stjórnendur félagsins telja að horfur í rekstri séu góðar og engar vísbendingar eru um annað en að áætlanir félagsins standist í öllum aðalatriðum. Áherslur í starfsemi félagsins, fyrir utan hefðbundin rekstrarmál næstu mánuði er eftirfylgni með endurskipulagningu Smáralindar og uppbyggingu Hafnartorgs í miðbæ Reykjavíkur. Kynning á félaginu Samhliða birtingu uppgjörs boðar Reginn til opins kynningarfundar á morgun, fimmtudaginn 25. ágúst, kl. 08:30 í anddyri Norðurturns/Smáralindar, Hagasmára 3, 201 Kópavogi. Helgi S. Gunnarsson forstjóri félagsins mun kynna afkomu fyrstu sex mánaða ársins 2016 og svara spurningum. Skráning á kynningarfundinn fer fram í gegnum netfangið fjarfestatengsl@reginn.is. Fundinum verður einnig varpað í gegnum netið á eftirfarandi slóð: http://livestream.com/accounts/11153656/events/6175228/player Hægt er að nálgast árshlutareikning vegna fyrstu sex mánaða ársins og kynningargögn á www.reginn.is/fjarfestar/ Nánari upplýsingar veitir: Helgi S. Gunnarsson Forstjóri Regins hf. Sími: 512 8900 / 899 6262 |
|||
|