2007-11-09 12:13:04 CET

2007-11-09 12:13:04 CET


Isländska Engelska
Teymi hf. - Viðskipti stjórnenda

Teymi - Útgáfa kauprétta


Stjórn Teymis hf. hefur ákveðið að gefa út kauprétti að hlutafé í félaginu til 
lykilstarfsmanna samstæðunnar.  Rétthöfum er heimilt að nýta þriðjung
kaupréttar á hverju ári í þrjú ár og er fyrsta innlausn í nóvember 2008. 
Rétturinn er á genginu 6,54 kr. á hlut sem er lokagengi 8. nóvember 2007.
Skilyrði fyrir innlausn er að starfsmaður hafi ekki látið af störfum fyrir
innlausnardag. Samtals gaf stjórnin út kauprétti fyrir 10 milljónir hluta.