|
|||
2008-06-04 11:26:53 CEST 2008-06-04 11:27:55 CEST Skipti hf. - Yfirtökutilboð- Innlausn á hlutum í SkiptumExista hf., kt. 610601-2350, Ármúla 3, Reykjavík, („Exista“) og stjórn Skipta hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, Reykjavík, („Skipti“) hafa samþykkt að aðrir hluthafar í Skiptum skuli sæta innlausn Exista á hlutum sínum, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. Exista og dótturfélög þess eiga samtals 99,22% hlutafjár í Skiptum og ráða yr samsvarandi atkvæðisrétti. Innlausnin tekur til allra annarra hluthafa Skipta sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok dags 2. júní 2008. Þeim hluthöfum hefur verið send þessi tilkynning, auk þess sem hún er birt í dagblöðum í samræmi við samþykktir Skipta um boðun aðalfundar, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga nr. 108/2007. Hluthafar í Skiptum, sem innlausnin tekur til, eru hvattir til að framselja Exista hluti sína í Skiptum innan 4 vikna frá dagsetningu þessarar tilkynningar. Innlausnarverðið er 6,64 kr. fyrir hvern hlut í Skiptum. Greitt verður fyrir hlutina með hlutum í Exista þar sem hver hlutur í Exista er verðlagður á 10,1 krónu. Er um að ræða sama verð og endurgjald og Exista bauð hluthöfum Skipta í yfirtökutilboði sem lauk 26. maí 2008. Greiðslan verður innt af hendi 2. júlí 2008. Til að framselja Exista hluti sína í Skiptum þurfa hluthafar að fylla út framsalseyðublað sem þeim hefur verið sent með þessari tilkynningu. Rétt útfyllt framsalseyðublað verður að berast Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, fyrir kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 2. júlí 2008. Hafi hlutir í Skiptum ekki verið framseldir til Exista í samræmi við framangreint, verður andvirði hlutanna í Skiptum, þ.e. hlutir í Exista, flutt inn á vörslusafn viðkomandi hluthafa þar sem hlutir hans í Skiptum eru í vörslu. Frá þeim tíma telst Exista réttur eigandi viðkomandi hluta í Skiptum, sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 108/2007. Kaupþing banki hf. hefur umsjón með innlausninni fyrir hönd Exista. Nánari upplýsingar veita ráðgjafar bankans í síma 444-7000. Vakin er sérstök athygli hluthafa á því að Kaupþingi banka hf. er óskylt að meta hvort viðskipti í tengslum við innlausnina séu viðeigandi fyrir þá og þeir njóta því ekki þeirrar verndar sem í slíku mati felst samkvæmt 16. gr. laga nr. 108/2007. Er hluthöfum bent á að leita sér sérfræðiaðstoðar vegna viðskiptanna. |
|||
|