|
|||
![]() |
|||
2015-06-30 18:34:24 CEST 2015-06-30 18:34:41 CEST REGULATED INFORMATION Fjarskipti hf. - FyrirtækjafréttirFjarskipti hf. : Áfram unnið að útfærslu samrekstrarfélags Vodafone og NovaEins og fram kom í fréttatilkynningu vegna afkomu Fjarskipta hf. á fyrsta ársfjórðungi veitti Samkeppniseftirlitið samþykki sitt fyrir rekstri samrekstrarfélags Vodafone og Nova ("félögin"), að vissum skilyrðum uppfylltum, sbr. nú ákvörðun eftirlitsins nr. 14/2015. Boðað hafði verið að tíðinda væri að vænta fyrir lok annars ársfjórðungs. Af þeim sökum skal upplýst að félögin vinna enn að útfærslu samstarfsins á grundvelli fyrirmæla í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins. Nauðsynlegt hefur reynst að uppfæra og endurskoða samningsdrög á milli félaganna sem hefur verið nokkuð verkefni en góður framgangur náðst að undanförnu. Þá hefur Samkeppniseftirlitið fyrir sitt leyti samþykkt tillögu félaganna um skipan óháðs kunnáttumanns, sem hafa mun eftirlit með framkvæmd ákvörðunar eftirlitsins. Nánari upplýsingar verða veittar um leið og endanleg niðurstaða liggur fyrir. [HUG#1933096] |
|||
|