2015-07-01 16:38:23 CEST

2015-07-01 16:38:44 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų
Hafnarfjarðarkaupstaður - Fyrirtækjafréttir

Umbótaáætlun Hafnarfjarðarkaupstaðar


Viðamikil umbótaáætlun lögð fram

  * Ítarlegar úttektir gerðar á fjármálum og stjórnsýslu Hafnarfjarðar auk
    tillagna til umbóta.
  * Tillögur sem skapa allt að 700-900 milljóna króna svigrúm í rekstri.
  * Markmið að stöðva skuldasöfnun sveitarfélagsins til hagsbóta fyrir bæjarbúa.
  * Tillögur og allar greiningar  má nálgast rafrænt á vef bæjarins.

Nú   liggja   fyrir   niðurstöður   úttekta  á  rekstri  Hafnarfjarðarbæjar  sem
ráðgjafafyrirtækin  Capacent og R3 hafa  unnið að undanfarna mánuði. Skýrslurnar
og  tillögur til  umbóta hafa  verið birtar  á vef  Hafnarfjarðar í anda opinnar
stjórnsýslu  gagnvart bæjarbúum. Tillögurnar verða  teknar til meðferðar á næstu
vikum og mánuðum innan stjórnkerfis bæjarins.

Bæjarstjórn  Hafnarfjarðar hefur það markmið  að stöðva skuldasöfnun bæjarins og
koma rekstri sveitarfélagsins á réttan kjöl. Þannig verður hægt að koma til móts
við íbúa Hafnarfjarðar með hagstæða þjónustu og styrkja samkeppnisstöðu bæjarins
innan höfuðborgarsvæðisins.

Tillögur  ráðgjafafyrirtækjanna gera ráð fyrir að mögulegar breytingar geti létt
rekstur  bæjarins um allt  að 900 milljónir króna  á ársgrundvelli, ef þær myndu
allar  ná fram að  ganga. Raunhæft mætti  ætla að eftir  úrvinnslu tillagnanna á
komandi  mánuðum  muni  ávinningurinn  fyrir  bæjarsjóð  nema  á bilinu 500-600
milljónum króna.

Tillögurnar  fela ekki í sér skerðingu á þjónustu til bæjarbúa heldur er leitast
við  að ná fram meiri  árangri úr núverandi rekstri  bæjarins. Einnig eru lagðar
til  ýmsar  sjálfsagðar  umbætur  eins  og  að  bærinn  nýti  sér  í  meiri mæli
útboðsleiðir til að lækka kostnað við kaup á þjónustu."Það er afar mikilvægt að hafa farið í þessa vinnu við að greina stöðuna í bænum
og  fá tillögur  utanaðkomandi aðila  til umbóta,"  segir Haraldur L. Haraldsson
bæjarstjóri.  "Það er alveg ljóst  að við getum gert  breytingar á rekstrinum og
náð  þannig fram verulegum umbótum sem síðan  má nota til að létta íbúunum lífið
ef  svo má segja  sem er eitt  af okkar megin  markmiðum. Við vonumst  til að ná
góðri sátt þar um."

Nánar um helstu atriði rekstrargreiningar

Í skýrslu Capacent er að finna nýja greiningu á fjárhagsstöðu Hafnarfjarðarbæjar
sem  staðfestir aðrar greiningar um alvarlega  stöðu bæjarins. Þar kemur fram að
framlegð  til rekstrar  er of  lág til  að greiða  upp skuldir og að svigrúm til
skattahækkana sé lítið.  Árið 2014 var skuldahlutfall Hafnarfjarðarbæjar (A og B
hluta)  202% en hæst var það 2011 og stóð þá  í 250%. Ef einungis er horft til A
hluta  að þá  var skuldahlutfall  bæjarins 185% en  hæst árið 2012 þegar það var
222%. Hvort  heldur sem er horft til A eða  A og B hluta sveitarfélagsins, þá er
skuldahlutfall    út   frá   skuldaviðmiðum    sveitarfélaga   enn   yfir   þeim
viðmiðunarmörkum  sem getið er  um í reglugerð  um fjármál sveitarfélaga. Út frá
þeim  forsendum sem gefin eru  í skuldaviðmiðum var skuldahlutfall Hafnarfjarðar
157% í  A hluta en 176% í A og B hluta en skuldaviðmið gerir ráð fyrir að A og B
hluti  fari  ekki  yfir  150 %.  Hátt  skuldahlutafall  og lág framlegð þýðir að
óbreyttu næst ekki að greiða niður skuldir sveitarfélagsins.




[HUG#1933471]