|
|||
2010-01-27 11:13:58 CET 2010-01-27 11:14:59 CET REGULATED INFORMATION Sveitarfélagið Álftanes - FyrirtækjafréttirTillögur bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðirSveitarfélagið Álftanes glímir við alvarlega fjárhagserfiðleika og gerði bæjarstjórn Álftaness sérstakt samkomulag, dags. 17. desember 2010, við Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga (EFS) um fjárhagslegar aðgerðir og eftirlit. Í samkomulaginu kemur fram að með vísan til 2. mgr. 76. gr. sveitarstjórnarlaga og með hliðsjón af tillögum nefndarinnar er sveitarfélaginu veittur frestur til 20. janúar 2010, síðar framlengt til 27. janúar sama ár, til að koma fjármálum sveitarfélagsins í viðunandi horf. Samkomulaginu er ætlað að skapa bæjarstjórn svigrúm til að endurskipuleggja fjárhag sveitarfélagsins og að lögð verði fram áætlun um að eigi síðar en á árinu 2013 verði reksturinn hallalaus. Á 79. fundi bæjarstjórnar Álftaness, 26. janúar 2010, voru samþykkt drög að skýrslu um „Tillögur bæjarstjórnar um fjárhagslegar aðgerðir“ á grundvelli 2. gr. samkomulags við EFS. Skýrslan lýsir tillögum bæjarstjórnar um aðgerðir til að koma fjármálum sveitarfélagsins í viðunandi horf. Tillögur um gerðir skiptast í þrjá megin flokka, þ.e. aðgerðir í rekstri, aðgerðir gagnvart skuldum við lánastofnanir og aðgerðum gagnvart skuldbindandi samningum. Við gerð rekstraráætlunar voru allir rekstrarliðir skoðaðir og leitast við að ganga eins langt og hægt er í lækkun kostnaðar, þó þannig að ekki yrði gengið of nærri grunnþjónustu sveitarfélagsins. Skuldbindandi samningar voru skoðaðir og leitað leiða til þess að minnka eða fella niður skuldbindingar sveitarfélagsins á grundvelli samninganna. Farið ítarlega yfir skuldir sveitarfélagsins og gerðar eru tillögur um hvernig mætti lágmarka greiðslubyrði allra þeirra lána sem hægt er að skuldbreyta. Í skýrslunni eru ekki gerðar tillögur um að gengið verði til nauðasamninga sem feli í sér niðurfellingu skulda hjá lánastofnunum. Nefnd skýrsla verður aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.alftanes.is frá og með 27. janúar 2010. Bæjarstjórinn á Álftanesi, Pálmi Þór Másson |
|||
|