|
|||
2009-04-02 11:03:11 CEST 2009-04-02 11:04:18 CEST REGULATED INFORMATION Sparisjóður Mýrasýslu - Fyrirtækjafréttir- Sparisjóður Mýrasýslu hefur breytt hluta skulda hjá AFL - sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar í stofnféSparisjóður Mýrasýslu hefur breytt hluta skulda hjá AFL - sparisjóði og Sparisjóði Ólafsfjarðar í stofnfé. Um er að ræða stofnfjáraukningu í AFL - sparisjóði að fjárhæð 500mkr. og hjá Sparisjóði Ólafsfjarðar að fjárhæð 330mkr. Með þessu er búið að koma eiginfjárstöðu þessara tveggja sparisjóða í gott horf og tryggja áframhaldandi starfsemi sjóðanna. Ofangreindir sjóðir eru dótturfélög Sparisjóðs Mýrasýslu. Frekari upplýsingar veitir Sparisjóðsstjóri, Bernhard Þór Bernhardsson, bernhard@spm.is |
|||
|