2024-06-07 13:24:08 CEST

2024-06-07 13:24:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Aðrar upplýsingar sem birtar eru í samræmi við reglur Kauphallarinnar

REITIR: Útboð á skuldabréfum 10. júní 2024 í REITIR150534


Reitir fasteignafélag hf. efnir til útboðs á skuldabréfum mánudaginn 10. júní næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í skuldabréfaflokknum REITIR150534.

Flokkurinn er verðtryggður og veðtryggður með almennu tryggingafyrirkomulagi félagsins. Flokkurinn ber 3,935% vexti og er með lokagjalddaga 15. maí 2034 en endurgreiðsluferli höfuðstóls fylgir 30 ára greiðsluferli með jöfnum afborgunum. Greiðslur vaxta og afborgana eru á tveggja mánaða fresti.

Útboðið verður á föstum kjörum sem samsvarar ávöxtunarkröfunni 3,85%. Félagið áskilur sér rétt til þess að taka hvaða tilboði sem er, í heild eða að hluta, eða hafna þeim öllum. Áætlaður uppgjörsdagur er þriðjudaginn 18. júní 2024. Verður óskað eftir því að bréfin verði tekin til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland samhliða.

Útboðið er lokað og undanþegið gerð lýsingar, sbr. d-liður 4. mgr. 1. gr. reglugerðar (ESB) 2017/1129, sbr. lög nr. 14/2020. Grunnlýsing, endanlegir skilmálar og önnur skjöl er varða útgáfu framangreinds skuldabréfaflokks eru birt á vefsíðu félagsins, reitir.is/fjarfestar. Tilkynningar sem Reitir fasteignafélag hf. birtir í tengslum við viðvarandi upplýsingaskyldu frá birtingu grunnlýsingar má jafnframt nálgast á vefsíðu félagsins.

Íslandsbanki hefur umsjón með útgáfu og sölu skuldabréfanna sem og töku þeirra til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.

Upplýsingar veita Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, einar@reitir.is, sími 669 4416 og Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, vbm@islandsbanki.is.