|
|||
2011-07-06 18:44:59 CEST 2011-07-06 18:46:00 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirAðgerðir Lánamála ríkisins samhliða öðru gjaldeyrisútboði Seðlabanka ÍslandsÍ tilkynningu Lánamála ríkisins þann 28. mars 2011 kemur fram að kaupendur gjaldeyris í væntanlegum útboðum Seðlabanka Íslands geti selt ríkissjóði ríkisvíxla og ríkisbréf með gjalddaga fyrir árslok 2013 til fjármögnunar á gjaldeyriskaupum. Gjaldeyrisviðskiptin munu fara fram með milligöngu viðskiptavaka á gjaldeyrismarkaði sem eru Arion banki, Íslandsbanki og NBI (Landsbankinn) Í dag tilkynnti Seðlabankinn að annað útboðið yrði haldið þann 12. júlí með uppgjöri daginn eftir. |
|||
|