2013-08-22 18:10:04 CEST

2013-08-22 18:11:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Sláturfélag Suðurlands svf. - Interim information (is)

Afkoma Sláturfélags Suðurlands á fyrri árshelmingi 2013


Afkoma á fyrri árshelmingi 2013

  -- Tekjur á fyrri árshelmingi 5.351 mkr. og aukast um 9% milli ára.
  -- 230 mkr. hagnaður á fyrri árshelmingi ársins en 160 mkr. hagnaður árið
     áður.
  -- EBITDA afkoma var 524 mkr. en 471 mkr. árið áður.
  -- Eigið fé 3.339 mkr. í lok júní og eiginfjárhlutfall 49%.

Árshlutareikningurinn samanstendur af árshlutareikningi Sláturfélags Suðurlands
svf. og dótturfélagi þess, Reykjagarði hf. 

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands á tímabilinu janúar til júní 2013 var
230 mkr.  Á sama tímabili árið áður var 160 mkr. hagnaður.  Eigið fé
Sláturfélagsins er 3.339 mkr. í lok júní. 

Rekstrartekjur samstæðu Sláturfélags Suðurlands voru 5.351 mkr. á fyrri
árshelmingi ársins 2013, en 4.925 mkr. á sama tíma árið áður og hækka því um
9%.  Aðrar tekjur voru 14 mkr en 23 mkr. árið áður. 

Vöru- og umbúðanotkun var 3.080 mkr. en 2.899 mkr. árið áður. Launakostnaður
hækkaði um rúm 11%, annar rekstrarkostnaður hækkaði um 12% og afskriftir
hækkuðu um tæpt 1%. Rekstrarhagnaður án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var
380 mkr., en 328 mkr. árið áður.  Hagnaður fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir
(EBITDA) var 524 mkr.  en var 471 mkr. á sama tíma í fyrra. 

Hlutdeild í afkomu hlutdeildarfélaga var jákvæð um 10 mkr. en árið áður um 17
mkr.  Fjármagnsgjöld umfram fjármunatekjur voru 105 mkr., en voru 150 mkr., á
sama tímabili í fyrra.  Reiknaður tekjuskattur nam 55 mkr., en 36 mkr. árið
áður.  Hagnaður af rekstri tímabilsins var 230 mkr. en 160 mkr. á sama tímabili
árið áður. 

Veltufé frá rekstri án vaxta og skatta var 519 mkr. á fyrri árshelmingi ársins
2013, samanborið við 469 mkr. fyrir sama tímabil árið 2012. Heildareignir
Sláturfélagsins 30. júní  voru 6.792 mkr. og eiginfjárhlutfall 49%. 
Veltufjárhlutfall var 2,8 á fyrri hluta ársins 2013, en 3,2 árið áður. 

Fjárfest var í varanlegum rekstarfjármunum á fyrri árshelmingi 2013 fyrir 183
mkr. en 148 mkr. á sama tímabili árið áður. Seldar voru eignir fyrir 10 mkr. Á
fyrri árshelmingi hófust framkvæmdir við stækkun starfstöðvar félagsins á
Selfossi en þar er m.a. slátur- og frystihús félagsins. 

Samkvæmt samþykkt aðalfundar félagsins í mars 2013 var í aprílmánuði greiddur
14,5% arður af B-deild stofnsjóðs alls 26 mkr. og reiknaðir 7% vextir á A-deild
stofnsjóðs alls 20 mkr. 

Stjórn og forstjóri staðfestu árshlutareikning samstæðu Sláturfélagsins fyrir
tímabilið 1. janúar - 30. júní 2013 með undirritun á stjórnarfundi í dag.
Árshlutareikningur samstæðunnar er með könnunaráritun endurskoðenda. 

Sláturfélagið er skráð á First North markaðinn hjá NASDAQ OMX.  Sláturfélagið
birtir upplýsingar um afkomu á sex mánaða fresti.  Ráðgert er að birta afkomu
ársins 2013 þann 18. febrúar 2014. 


Staða og horfur

Fjárhagsstaða Sláturfélagsins er traust með 49% eiginfjárhlutfall og
veltufjárhlutfall 2,8. Langtímatímaskuldir í lok júní 2013 voru 2.018 mkr. og
skuldahlutfall því um 2 að teknu tilliti til EBITDA afkomu félagsins. Næsta árs
afborganir eru um 88 mkr. en lán samstæðunnar eru til langs tíma sem tryggir
lága árlega greiðslubyrði. 

Innanlandssala á kjöti fer hægt vaxandi. Aðstæður á erlendum mörkuðum eru
misjafnar fyrir lambakjöt og enn ríkir nokkur óvissa með afsetningu á hluta
afurða sem falla til í haust. 

Bætt rekstrarskilyrði á síðastliðnum árum, öflug vöruþróun og markaðssókn hafa
styrkt afkomu kjötiðnaðar. Staða lykilvörumerkja félagsins í kjötiðnaði er afar
sterk og ímynd félagsins góð á markaði sem rennir stoðum undir frekari
uppbyggingu á markaðsstöðu á komandi árum.  Gert er ráð fyrir að á síðari
árshelmingi hægi á afkomubata kjötiðnaðar einkum vegna hærra innkaupsverðs á
aðföngum. 

Matvöruhluti innflutningsdeildar stendur vel. Með nýjum viðskiptasamböndum
hefur vöruúrval verið aukið til áframhaldandi vaxtar. Búvöruhluti
innflutningsdeildar hefur styrkt stöðu sína á markaði fyrir helstu
rekstrarvörur bænda. Sala á Yara áburði til bænda gekk vel á fyrri hluta ársins
og sala á dlg kjarnfóðri og öðrum rekstrarvörum eykst stöðugt.  Framkvæmdir við
byggingu á nýju vöruhúsi í Þorlákshöfn undir starfsemi búvöruhluta
innflutningsdeildar hefjast fljótlega og áætlað að framkvæmdum verði lokið
fyrir áramót. 


Frekari upplýsingar veita:

Steinþór Skúlason, forstjóri í síma 575 6000 - steinthor@ss.is

Hjalti H. Hjaltason, fjármálastjóri í síma 575 6000 - hjalti@ss.is


Sjá árshlutareikning og lykiltölur í viðhengjum.