2012-12-14 17:04:49 CET

2012-12-14 17:05:50 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Skiptigengi í gjaldeyrisútboði


Samkvæmt tilkynningu Seðlabanka Íslands dags. þann 20. nóvember sl. varðandi
gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands sem haldið verður 18. desember nk.  kom fram
í útboðsskilmálum að skiptigengi vegna kaupa bankans á erlendum gjaldeyri í
tengslum við sölu ríkisverðbréfa í flokki RIKS 33 0321 yrði birt í lok dags 14.
desember. 

Ákveðið hefur verið að skiptigengi á fjölda eininga ríkisverðbréfa pr. evra
skal byggjast á útboðsverðinu og föstu verði ríkisverðbréfsins, sem er
106,935338 kr. pr. eining af ríkisverðbréfinu með áföllnum vöxtum og verðbótum
(e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 21. desember 2012 (ávöxtunarkrafa
2,90%).1 

Formúlan er eftirfarandi: Skiptigengi = útboðsverð/(verð ríkisverðbréfs/100).



1Hreint verð (e. clean price) er 101,5.