2014-08-28 10:40:58 CEST

2014-08-28 10:41:59 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
CCP hf. - Ársreikningur

Hálfsársuppgjör CCP hf 2014


Tekjur og framlegð félagsins á fyrri helming ársins voru stöðugar miðað við
sama tímabil í fyrra og markaðs- og almennur rekstarkostnaður lækkaði. Félagið
lauk tímabilinu með 11,3 milljón Bandaríkjadala í handbæru fé og
langtímaskuldir lækkuðu um 2,1 milljón. Ákvörðun félagsins um að hætta þróun á
fjölspilunar-tölvuleiknum World of Darkness hefur í för með sér töluverðan
kostnað vegna uppsagnarákvæða, afskrifta og niðurfærslna ákveðina óefnislegra
eigna.  Kostnaður þessi og afskriftir hefur neikvæð áhrif á afkomu tímabilsins. 


Sem hluti af áætlunum fyrirtækisins um að sameina og einfalda starfsemi sína
hefur CCP lokað skrifstofu sinni í San Francisco og tveir af stjórnendum
fyrirtæksins, Joe Gallo fjármálastjóri og David Reid markaðsstjóri, sem eru
staðsettir utan borga sem CCP hefur starfsstöðvar í, munu láta af störfum hjá
fyrirtækinu. 



Lykiltölur

  -- Tekjur fyrstu sex mánuði ársins námu 36,5 milljónum Bandaríkjadala,
     samanber 36,7 milljónir Bandaríkjadala á sama tímabil  á
rsins 2013.
  -- Framlegð tímabilsins nam 33,3 milljónum Bandaríkjdala, lækkun um 1,8%
     samanber sama tímabil ársins 2013.
  -- Gjaldfærður rannsóknar- og þróunarkostnaður jókst um 28 milljónir
     Bandaríkjadala miðað við sama tímabil í fyrra sem er fyrst og fremst vegna
     verulegrar aukningar í afskriftum og niðurfærslu á ákveðnum eignfærðum
     þróunarkostnaði í kjölfar þess að þróun á World of Darkness verkefninu var
     hætt.
  -- Niðurfærslan á þróunarkostnaði, sem nemur alls 24 milljónum Bandaríkjadala
     án skattaáhrifa, er langstærsti þátturinn í því að félagið skilar tapi á
     tímabilinu upp á 22,8 milljón Bandaríkjadala.
  -- Félagið skilaði 4,5 milljónum Bandaríkjadala í EBITDA hagnað á fyrstu sex
     mánuðum ársins sem er lækkun úr 8,3 milljónum Bandaríkjadala miðað við sama
     tímabil 2013. Lækkunina má rekja til kostnaðar vegna uppsagnarákvæða
     fráfarandi starfsmanna og aukins kostnaðar við fyrstu stig nýrra
     þróunarverkefna.



Hilmar Veigar Pétursson, framkvæmdastjóri:

“Stöðugar tekjur og framlegð félagsins á milli ára sýna að kjarnastarfsemi
okkar, útgáfa og þróun á tölvuleiknum EVE Online, er áfram sterk. Í apríl tókum
við þá erfiðu ákvörðun að hætta þróun á tölvuleiknum World of Darkness og
einbeita okkur að því markmiði að þróa leiki fyrir einn og sama leikjaheiminn;
EVE leikjaveröldina. 

Sem hluti af áætlunum okkar að sameina og einfalda starfsemi okkar á
lykilstarfsstöðvum fyrirtækisins, munum við á næstunni kveðja tvo af
stjórnendum fyrirtækisins. Joe Gallo og David Reid unnu frábært starf fyrir CCP
og ég óska þeim all hins besta á nýjum vettvangi.” 



Frekari upplýsingar:

Eldar Ástþórsson, upplýsingafulltrúi CCP
Netfang: eldar@ccpgames.com
Sími 869 8179