2014-08-28 11:00:30 CEST

2014-08-28 11:01:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tímabundin undanþága aðalmiðlara á skyldum á eftirmarkaði.


Vegna þeirrar óvissu sem gæti skapast á íslenskum skuldabréfamarkaði í kjölfar
ráðgefandi álits EFTA dómstólsins í máli nr. E-25/13 (Gunnar V. Engilbertsson
gegn Íslandsbanka hf.) sem birt verður fyrir opnun skuldabréfamarkaðar í dag,
hefur Íbúðalánasjóður ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á
skyldum á eftirmarkaði. Þann 28. ágúst eru aðalmiðlara undanþegnir því að
leggja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi kauphallarinnar með
tilgreindum hámarksmun eins og fram kemur í 3. gr. gildandi samnings í tengslum
við útgáfu HFF íbúðabréfa og viðskiptavakt á eftirmarkaði. 

Íbúðalánasjóði er heimilt að afturkalla þessa undanþágu að fengu samþykki
meirihluta aðalmiðlara sbr. 6. gr. ofangreinds samnings. 

Nánari upplýsingar veitir Sigurður Jón Björnsson framkvæmdastjóri fjármálasviðs
hjá Íbúðalánasjóði í síma 569 6990.