2014-08-28 11:06:11 CEST

2014-08-28 11:07:11 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Lánasjóður sveitarfélaga ohf. - Fyrirtækjafréttir

Lánasjóður sveitarfélaga - Tímabundin undanþága á skyldum aðalmiðlara á eftirmarkaði.


Vegna þeirrar óvissu sem gæti skapast á íslenskum skuldabréfamarkaði í kjölfar
ráðgefandi álits  EFTA dómstólsins í máli nr. E-25/13 (Gunnar V. Engilbertsson
gegn Íslandsbanka hf.) sem birt  verður fyrir opnun skuldabréfamarkaðar í dag,
hefur Lánasjóður sveitarfélaga ákveðið að veita  aðalmiðlurum tímabundna
undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. 

Þann 28. ágúst eru  aðalmiðlarar undanþegnir þeirri skyldu að leggja fram kaup-
og sölutilboð í viðskiptakerfi  NASDAQ OMX með tilgreindum hámarksmun eins og
fram kemur í 3. gr. gildandi samnings milli  aðalmiðara og Lánasjóðs
sveitarfélaga vegna útgáfu skuldabréfa Lánasjóðs sveitarfélaga og viðskiptavakt
á eftirmarkaði. 

Nánari upplýsingar veitir Óttar Guðjónsson, framkvæmdastjóri, s. 515 4949