|
|||
2014-08-28 11:17:56 CEST 2014-08-28 11:18:57 CEST REGULATED INFORMATION Reykjavíkurborg - FyrirtækjafréttirTímabundin undanþága á skyldum aðalmiðlara á eftirmarkaðiVegna þeirrar óvissu sem gæti skapast á íslenskum skuldabréfamarkaði í kjölfar ráðgefandi álits EFTA dómstólsins í máli nr. E-25/13 (Gunnar V. Engilbertsson gegn Íslandsbanka hf.) sem birt verður fyrir opnun skuldabréfamarkaðar í dag, hefur Reykjavíkurborg ákveðið að veita aðalmiðlurum tímabundna undanþágu á skyldum á eftirmarkaði. Þann 28. ágúst eru aðalmiðlarar undanþegnir þeirri skyldu að leggja fram kaup- og sölutilboð í viðskiptakerfi NASDAQ OMX með tilgreindum hámarksmun eins og fram kemur í 3. gr. gildandi samnings milli aðalmiðara og Reykjavíkurborgar vegna útgáfu skuldabréfa Reykjavíkurborgar og viðskiptavakt á eftirmarkaði. Nánari upplýsingar gefur: Birgir Björn Sigurjónsson Fjármálastjóri Reykjavíkurborgar Sími: 693-9321 |
|||
|