|
|||
2024-05-23 18:55:35 CEST 2024-05-23 18:55:39 CEST REGULATED INFORMATION Brim hf. - Árshlutareikningur (Q1 og Q3)Uppgjör Brims á fyrsta ársfjórðungi 2024Guðmundur Kristjánsson, forstjóri: „Gæftir voru erfiðar á fyrstu þremur mánuðum ársins. Kolmunnaveiðin gekk ágætlega en loðnan lét ekki sjá sig. Loðnubrestur hefur alltaf mikil áhrif á afkomu félagsins á þessum ársfjórðungi. Afkoman núna er áþekk og á árum áður þegar lítið sem ekkert hefur veiðst af loðnu. Félagið hefur í dag gengið frá samkomulagi um kaup á frystitogaranum Ilivileq frá Arctic Prime Fisheries í Grænlandi fyrir 55 milljónir evra. Skipið mun styrkja frekar bolfiskveiðar félagsins en þær og vinnsla þeirra var eins og við reiknuðum með á árinu. Afurðaverð hækkaði á sjófrystum afurðum en verð á landfrystum afurðum stóð í stað. Markaðir okkar eru áfram erfiðir. Óvissa vegna stríða er enn til staðar og fjármunir eru áfram dýrir sem dregur bæði úr neyslu og uppbyggingu. Þegar við horfum hingað heim á þætti sem hafa breyst og hafa áhrif rekstur Brims blasir við að við vorum ekki undir það búin að raforka til að knýja fiskimjölsverksmiðju okkar á Vopnafirði yrði ekki fáanleg. Það kom okkur í opna skjöldu að við þyrftum að gera langtímasamninga um raforkukaup til að tryggja þá raforku sem við þyrftum. Ekki hvarflaði að okkur þegar Brim á sínum tíma fjárfestum í búnaði til að knýja fiskmjölsverksmiðju okkar með rafmagni að í framtíðinni yrði búið að selja það mikla raforku í langtímasamninga við stórnotendur að orkan yrði uppseld og ófáanleg. Þá skal því haldið til haga að fyrirkomulag langtímasölusamninga raforku tekur ekki tillit til óvissu um aflabrögð og náttúrulegra sveiflna í nýtingu endurnýjanlegra auðlinda, líkt og fiskistofnarnir við Ísland eru. Vegna þess hefur Brim þurft að kaupa tvær díselrafstöðvar og komið þeim fyrir og rekið í miðjum Vopnafjarðarbæ. Við það hefur kostnaður aukist og kolefnissporið stækkað en félagið hefur á undanförnum árum lagt metnað sinn í að minnka kolefnissporið. Mikilvægt er að breytingar á raforkulögum og þróun raforkumarkaðar á Íslandi styðji vegferð fyrirtækja í loftslagsmálum og markmið raforkulaganna um eflingu atvinnulífs og byggðar í landinu. Eða kemur að því á næstunni að Brim og önnur fyrirtæki á Íslandi þurfi að kaupa rafmagn af stóriðjunni á uppsprengdu verði þar sem stóriðjan hefur gert langtíma raforkusamninga við Landsvirkjun en íslenskt atvinnulíf og almenningur ekki ?“ Starfsemin á 1F2024 Bolfiskveiðar og vinnsla félagsins gengu samkvæmt áætlun, að undanskildum veiðum á ufsa, einnig var þorskveiði í Barentshafinu töluvert lakari en áætlanir gerðu ráð fyrir á tímabilinu. Skip félagsins veiddu tæplega 11 þús. tonn af bolfiski. Afurðaverð á sjófrystum afurðum styrktist á tímabilinu og var í lok tímabils hærra en áætlanir gerðu ráð fyrir. Afurðaverð á landunnum bolfiskafurðum stóð í stað eða lækkaði samanborið við sama tímabil í fyrra, þorskverð eru stöðug á meðan karfaverð hafa gefið eftir. Uppsjávarveiðar skipa Brims hófust í janúar á kolmunna í færeysku lögsögunni. Kolmunnaveiðar voru stundaðar til loka febrúar og veiddust um 18 þúsund tonn á þeim tíma og var aflanum landað í fiskmjölsverksmiðju félagsins á Vopnafirði. Því miður fannst loðna ekki í nægjanlegu magni til að gefa út kvóta til veiða í ár og lágu því skipin við bryggju í mars. Helstu atriði úr fjárhagsuppgjöri 1F 2024
Rekstur Efnahagur Sjóðstreymi Handbært fé frá rekstri nam 13,4 m€ á fyrsta fjórðungi ársins, en var 17,3 m€ á fyrsta fjórðungi 2023.Fjárfestingarhreyfingar voru 1,5 m€ og fjármögnunarhreyfingar voru neikvæðar um 3,3 m€. Handbært fé hækkaði því um 8,7 m€ og var 42,8 m€ í lok tímabilsins. Meginniðurstöður færðar til íslenskra króna Séu niðurstöður rekstrarreiknings reiknaðar til íslenskra króna á meðalgengi fyrsta fjórðungs árins 2024 (1 evra = 149,05 ísk) voru tekjur 14,1 milljarðar króna, EBITDA 1,8 milljarðar og hagnaður 0,7 milljarðar. Séu niðurstöður efnahagsreiknings reiknaðar til íslenskra króna á gengi 31. mars 2024 (1 evra = 149,9 ísk) voru eignir samtals 142,8 milljarðar króna, skuldir 75,1 milljarðar og eigið fé 67,8 milljarðar. Hluthafar Lokaverð hlutabréfa 31. mars 2024 var 77 kr. á hlut og var markaðsvirði félagsins þá 148 milljarðar króna. Fjöldi hluthafa var 1.827. Samþykkt árshlutareiknings Árshlutareikningurinn var samþykktur á stjórnarfundi Brims hf. 23. maí 2024. Árshlutareikningurinn er í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS – International Financial Reporting Standards). Árshlutareikningurinn hefur hvorki verið kannaður né endurskoðaður af endurskoðendum félagsins. Brim hf. Brim er öflugt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfar í sátt við samfélagið og umhverfið. Við stuðlum að verðmætasköpun í sjávarútvegi með vöruþróun, tæknilausnum og öflugu starfsfólki. Við tryggjum með ábyrgum veiðum og vinnslu, þar sem áhersla er á sjálfbærni og nýsköpun, að sjávarútvegur verði áfram burðarstólpi í íslensku samfélagi. Við leitum allra leiða til að lágmarka áhrif starfseminnar á umhverfið hvort sem er á sjó eða í landi. Fjárhagsdagatal Annar ársfjórðungur 29. ágúst 2024 Nánari upplýsingar Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Kristjánsson forstjóri, sími 550-1000. Viðhengi |
|||
|