2011-03-01 16:21:47 CET

2011-03-01 16:22:49 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
RARIK ohf. - Ársreikningur

Ársreikningur RARIK fyrir árið 2010


Veruleg umskipti í fjármagnsliðum. Rekstarhagnaður (EBIT) óbreyttur milli ára.

Ársreikningur  RARIK fyrir árið 2010

Veruleg umskipti í fjármagnsliðum. Rekstarhagnaður (EBIT) óbreyttur milli ára.

Rekstrarhagnaður af starfsemi RARIK fyrir fjármagnsliði (EBIT) á árinu 2010 var
1.787 milljónir króna sem um 3% aukning frá fyrra ári og í samræmi við
áætlanir. Vegna styrkingar krónunnar var hagnaður ársins mun meiri en 2009 sem
rekja má til verulegra breytinga á fjármagnsliðum, en niðurstaða fjármagnsliða
var jákvæð um 56 milljónir króna, þrátt fyrir að vaxtaberandi skuldir félagsins
hafi verið 15.712 milljónir króna í árslok 2010. Áhrif gengisbreytinga voru
jákvæð um 833 milljónir. 

Rekstrartekjur hækkuðu um rúm 11% frá árinu 2009 og voru 9.694 milljónir króna,
en rekstrargjöld hækkuðu um rúm 13% og voru 7.907 milljónir króna. 

Fjármagnsgjöld á árinu 2010 voru eins og áður segir jákvæð um 56 milljónir
króna sem má að stórum hluta rekja til styrkingar krónunnar, bæði hvað varðar
erlenda lánasamninga og afleiðusamninga, en einnig vegna lágra vaxta á erlendum
lánum. Í áætlunum ársins var ekki gert ráð fyrir breytingu á gengi krónunnar. 

Samkvæmt rekstrarreikningi var hagnaður á árinu 2.518 milljónir króna en
rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) var 3.054
milljónir króna eða 31,5% af veltu tíma-bilsins og hefur EBITDA félagsins
hækkað um rúm 7,4% frá árinu 2009. Handbært fé frá rekstri var 2.067 milljónir
króna. 

Áhrif Landsnets, sem er hlutdeildarfélag RARIK, á afkomu ársins voru jákvæð um
802 milljónir króna. 

Samkvæmt efnahagsreikningi voru heildareignir RARIK í árslok 37.032 milljónir
króna, heildarskuldir námu 18.718 milljónum króna, eigið fé var 18.314
milljónir króna og eiginfjárhlutfall því 49,5%. 

Ársreikningur RARIK ohf. er gerður samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.

Horfur

Horfur í rekstri RARIK á árinu 2011 eru góðar, en afkoman á næstu tímabilum
ræðst hins vegar af almennri þróun efnahagsmála, verðlagsþróun og gengi
krónunnar. Áætlanir ársins 2011 gera ráð fyrir hagnaði af rekstri félagsins.
Gjaldskrá fyrir dreifingu var hækkuð um áramótin, en skv. áætlunum er ekki gert
ráð fyrir hækkunum umfram almennar verðlagsbreytingar. Fyrirtækið hefur þó ekki
nýtt sér að fullu tekjuheimildir í raforkulögum við gjaldskrárgerð. Á það
einkum við um gjaldskrá í dreifbýli. Vextir erlendra lána hafa verið hagstæðir
undanfarin misseri og gert er ráð fyrir að þeir haldist sambærilegir út árið
2011. 



Gert er ráð fyrir aukningu í fjárfestingum í dreifikerfum frá fyrra ári, en
síðustu tvö ár hefur fjárfestingum verið frestað samhliða niðurskurði í rekstri
félagsins vegna stöðu efnahagsmála. Þrátt fyrir þessa aukningu er ekki þörf á
nýrri fjármögnun á næstu fjórum árum vegna hefðbundinna verkefna fyrirtækisins. 

Á árinu 2011 er gert ráð fyrir að orkusala og dreifing aukist lítillega, sem er
í samræmi við þróun síðustu ára. 

Helstu stærðir samstæðureiknings eru sýndar í meðfylgjandi viðhengi.