|
|||
2009-11-30 23:00:00 CET 2009-11-30 23:02:07 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - Heildarfjöldi atkvæða og heildarfjöldi hlutaÓveruleg hlutafjáraukningFréttatilkynning frá Össuri hf Reykjavik, 30. nóvember 2009, GMT 22:00 Óveruleg hlutafjáraukning Stjórn Össurar hf. (Össur) hefur í dag tekið ákvörðun um að gefa út 1.250.000 nýja hluti í Össuri og auka hlutaféð um 0,28% úr 452.500.000 krónum í 453.750.000 krónur að nafnvirði. Ákvörðunin var tekin á grundvelli heimildar stjórnar í B-lið 2. mgr. greinar 2.01 í samþykktum félagsins. Bréfin eru gefin út vegna kaupa félagsins á hlut í bandarísku fyrirtæki sem dreifir spelkum og stuðningsvörum. Kaupin hafa óveruleg áhrif á rekstur Össurar. Verð fyrir hvern hlut er DKK 5,12 (jafngildir USD 1,03) og skal greitt í Bandaríkjadölum. Andvirði hlutanna er 1.287.500 Bandaríkjadalir. Seljendurnir hafa skráð sig fyrir nýju hlutunum. Nánari upplýsingar veita: Sigurborg Arnarsdóttir, fjárfestatengill, sími 664-1044 |
|||
|