|
|||
2009-02-06 02:01:02 CET 2009-02-06 02:02:48 CET REGULATED INFORMATION Össur hf. - Boðun hluthafafundarAðalfundur Össurar hf.Aðalfundur Össurar hf. verður haldinn í höfuðstöðum félagsins að Grjóthálsi 5, 110 Reykjavík, föstudaginn 20. febrúar 2009 og hefst hann kl. 8:30. Á dagskrá fundarins verða: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt grein 4.02 í samþykktum félagsins. 1. Tillaga um að heimila stjórn að kaupa eigin bréf félagsins. 1. Önnur mál. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, mun vera hluthöfum til sýnis á skrifstofu félagsins að Grjóthálsi 5, Reykjavík, viku fyrir aðalfund. Reikningar og önnur gögn verða einnig birt á heimasíðu félagsins sem er www.ossur.com. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent á fundarstað frá kl. 8:15 Hluthafar eru hvattir til að mæta tímanlega til að taka við fundargögnum. Fundurinn hefst stundvíslega kl. 8:30 Upplýsingar um þá sem eru í kjöri til stjórnar er í meðfylgjandi viðhengi. Reykjavík 5. febrúar 2009 Stjórn Össurar hf. |
|||
|