2012-06-22 13:45:17 CEST

2012-06-22 13:46:19 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða í útboði óverðtryggða ríkisbréfa RIKB 14 0314 og RIKB 16 1013


Útboð á óverðtryggðum ríkisbréfum, RIKB 14 0314 og RIKB 16 1013 fór fram hjá
Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt
tilboð buðust á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa)
ákvarðaði söluverðið. 

                    Helstu niðurstöður útboðsins voru þessar:

RIKB 14 0314:

Alls bárust 9 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.850 m.kr. að nafnverði. 2
tilboðum var tekið fyrir 1.350 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 100,500 (4,43%
ávöxtunarkröfu). 

RIKB 16 1013:

Alls bárust 10 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 7.800 m.kr. að nafnverði. 2
tilboðum var tekið fyrir 6.000 m.kr. að nafnverði á söluverðinu 103,750 (5,00%
ávöxtunarkröfu). 



Ennfremur býðst aðalmiðlurum að kaupa 10% af nafnverði þess sem selt var í
útboðinu á söluverði samþykktra tilboða allt til kl. 14:00 þriðjudaginn 26.
júní. Hver aðalmiðlari sem á samþykkt tilboð í undangengnu útboði öðlast
kauprétt í hlutfalli af keyptu magni. Greiðslu- og uppgjörsdagur fyrir þessi
viðskipti er 27. júní 2012.