2008-12-09 17:24:30 CET

2008-12-09 17:25:30 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kópavogsbær - Fyrirtækjafréttir

- Fjárhagsáætlun 2009: Gert ráð fyrir hallalausum rekstri


Í tillögu að fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar fyrir árið 2009, sem verður lögð fram
til fyrri umræðu í bæjarstjórn Kópavogs í dag, er gert ráð fyrir hallalausum
rekstri. 

Heildartekjur Kópavogsbæjar árið 2009 eru áætlaðar rúmir 17 milljarðar króna.
Þar af er áætlað að skatttekjur nemi tæpum 13 milljörðum króna. Þannig er gert
ráð fyrir svipuðum heildartekjum og árið 2008 þrátt fyrir fjölgun íbúa í
Kópavogi. Reiknað er með 5% aukningu á launaveltu milli ára, 5% atvinnuleysi og
3% samdrætti í atvinnuþátttöku, en atvinnuþátttaka er hlutfall vinnuafls af
heildarmannfjölda. 
Miðað er við að grunnþjónusta verði ekki skert, útsvarstekjur lækki um 0,34%
frá tekjum ársins 2008, sorphirðugjald hækki úr 14.000 í 15.300 kr., engum
verði sagt upp vegna efnahagsþrenginganna, og þjónustugjöld verði óbreytt nema
á mat í leikskólum og grunnskólum vegna mikillar hækkunar á verði aðfanga. 

Með hliðsjón af sérstökum aðstæðum á fjármálamarkaði er gert ráð fyrir 10%
hækkun á framlögum til félagsþjónustu í Kópavogsbæ á árinu 2009 og 8% hækkun
til fræðslumála.