2014-05-16 18:13:47 CEST

2014-05-16 18:14:48 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Vátryggingafélag Íslands hf. - Fyrirtækjafréttir

VÍS semur um framkvæmd á endurkaupaáætlun félagsins


Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) hefur samið við H.F. Verðbréf hf. um
framkvæmd á endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um þann 13. maí 2014. 

Mun H.F. Verðbréf hf. taka allar viðskiptaákvarðanir er varða kaup á hlutum og
tímasetningu kaupanna óháð félaginu, sbr. viðauka við reglugerð nr. 630/2005 um
innherjaupplýsingar og markaðssvik, sem m.a. fjallar um viðskipti með eigin
bréf í endurkaupaáætlunum. 

Hámarksfjöldi hluta sem áætlunin kveður á um að verði keyptir eru að nafnverði
kr. 55.000.000 hlutir, en það jafngildir um 2,2% af útgefnu hlutafé félagsins.
Fjárhæð endurkaupanna verður þó aldrei hærri en kr. 500.000.000. 
Endurkaupaáætlunin gildir til aðalfundar félagsins 2015 nema kaupum samkvæmt
áætluninni sé lokið fyrir þann tíma. 

Viðskipti félagsins með eigin hluti á grundvelli endurkaupaáætlunar verða
tilkynnt eigi síðar en við lok sjöunda viðskiptadags eftir að viðskiptin hafa
farið fram. 

Kaupin verða framkvæmd í áföngum, þó þannig að kaup hvers dags verður að
hámarki kr. 2.250.810 hlutir að nafnverði, sem eru 25% af meðaltali daglegra
viðskipta með hlutabréf félagsins í Kauphöll Íslands í apríl 2014. 

Verð fyrir hvern hlut getur að hámarki verið síðasta skráða dagslokagengi áður
en kaup fara fram og hæsta fyrirliggjandi óháða boð í þeim viðskiptakerfum sem
kaupin fara fram. 

Nánari upplýsingar veitir Sigrún Ragna Ólafsdóttir forstjóri í síma 560-5000 og
í netfangi: fjarfestatengsl@vis.is.