|
|||
2013-09-03 18:01:00 CEST 2013-09-03 18:01:01 CEST REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirÚtgáfa á RIKS 33 0321 í tengslum við gjaldeyrisútboðÍ dag 3. september fór fram gjaldeyrisútboð hjá Seðlabanka Íslands þar sem bankinn bauðst til þess að kaupa evrur gegn afhendingu á ríkisbréfum í verðtryggða flokknum RIKS 33 0321. Aðgerðin sem er liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum mun draga úr árlegri endurfjármögnunarþörf ríkissjóðs. Samtals voru seld bréf í flokknum fyrir kr. 539.120.771 að nafnverði. Samþykkt gengi evru gangvart krónu var 210 í útboðinu. Þann 30. ágúst var tilkynnt um fast verð bréfanna sem er 111,403610 kr. með áföllnum vöxtum og verðbótum (e. dirty price) miðað við uppgjörsdag 6.september 2013 (krafa 2,75%).1 ____________________ 1 Hreint verð (e. clean price) 103,8 |
|||
|