|
|||
2009-12-16 09:51:42 CET 2009-12-16 09:52:43 CET REGULATED INFORMATION Sveitarfélagið Álftanes - Fyrirtækjafréttir- Tilkynning er varðar fjármál sveitarfélagsinsÁ 73. fundi bæjarstjórnar Álftaness, 4. nóvember s.l., var samþykkt tillaga meirihluta bæjarstjórnar um að senda Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga tilkynningu í samræmi við ákvæði 75. gr. sveitarstjórnarlaga. Unnin hefur verið rannsókn á rekstri og fjárreiðum sveitarfélagsins af hálfu Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga og var kynnt bæjarstjórn 9. desember s.l. Í skýrslunni er fjárhagsvanda sveitarfélagsins lýst og eru viðræður í gangi milli Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Sveitarfélagsins Álftaness um aðgerðir til að koma fjármálum sveitarfélagsins á réttan kjöl. Ekki hafa verið teknar ákvarðanir um framhaldið en búast má við ákvörðun í þeim efnum á allra næstu dögum. Vísast af þessu tilliti til 4. mgr. 73, laga nr. 45/1998, i.f. Bæjarstjórinn á Álftanesi, Pálmi Þór Másson |
|||
|