|
|||
2013-12-23 10:29:28 CET 2013-12-23 10:30:29 CET REGULATED INFORMATION Skipti hf. - FyrirtækjafréttirVeðréttindi skuldabréfaflokks Skipta hf., SKIPTI 13 01Í verðbréfalýsingu Skipta dagsettri 10. desember 2013 kemur fram í kafla 2.7 Samkomulag um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku að samkomulag um sameiginleg veð, veðvörslu og ákvarðanatöku liggi að baki skuldabréfinu. Samkomulagið er á milli Arion banka hf., sem lánveitanda og veðvörsluaðila, eigenda skuldabréfa í skuldabréfaflokknum SKIPTI 13 01 og Skipta hf. sem lántaka og útgefanda. Lán Skipta hjá Arion banka hf. og skuldabréfaflokkurinn SKIPTI 13 01 eru tryggð með 1. veðrétti í helstu eignum félagsins og dótturfélaga þess eins og kveðið er á um í Veðskjölunum. Heildarvirði veðsettra eigna nam um 90 milljörðum króna miðað við bókfært virði þann 30. júní 2013 í árshlutareikningi móðurfélagsins.. Veðskjölin eru m.a. með veði í fasteignum, bifreiðum, tilteknu lausafé, hugverkaréttindum, vörubirgðum, hlutabréfum í félögum innan samstæðu Skipta, kröfum samkvæmt lánasamningum innan samstæðu Skipta, innstæðum og bankareikningi, samningsbundnum réttindum í staðsetningarsamningum, þjónustusamningum og vátryggingasamningum. |
|||
|