|
|||
2016-01-22 11:37:54 CET 2016-01-22 11:37:54 CET REGULATED INFORMATION Reitir fasteignafélag hf. - FyrirtækjafréttirReitir selja Aðalstræti 16Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við Íslandshótel hf. um kaup Íslandshótela á Aðalstræti 16 í Reykjavík, sem Íslandshótel hafa leigt af félaginu undir rekstur Hótel Reykjavík Centrum. Salan er gerð á grundvelli kaupréttarákvæðis í leigusamningi. Söluverð fasteignarinnar er um 2,5 milljarðar kr. og greiðist með reiðufé. Við söluna mun áætlaður rekstrarhagnaður Reita lækka um 175 milljónir kr. á ársgrundvelli. Nánari upplýsingar veita Guðjón Auðunsson, forstjóri, í síma 660 3320 og Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416. |
|||
|