2019-06-14 17:37:01 CEST

2019-06-14 17:37:17 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reitir fasteignafélag hf. - Innherjaupplýsingar

Reitir selja Skútuvog 8


Reitir hafa undirritað kaupsamning um sölu á eigninni Skútuvogur 8 í Reykjavík, samtals 2011,9 fm., til Höldurs ehf. Söluverð fasteignarinnar er 620 milljónir kr. og greiðist með reiðufé. Salan mun ekki hafa áhrif á áætlaðan rekstrarhagnað Reita á árinu 2019 þar sem eignin verður afhent í lok ársins. Síðustu ár hefur rekstrarhagnaður eignarinnar á ársgrundvelli verið um 20 milljónir kr. en áætlanir gerðu ráð fyrir þróun og uppbyggingu á lóðinni. Fyrirvari er gerður af hálfu kaupanda um fjármögnun kaupanna.

Nánari upplýsingar veitir Einar Þorsteinsson, fjármálastjóri, í síma 669 4416.