2009-09-29 18:54:24 CEST

2009-09-29 18:55:24 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Tilkynning vegna útgáfu íbúðabréfa


Þann 17. júlí 2009 birti Íbúðalánasjóður endurskoðaða áætlun varðandi útlán,
útgáfu og greiðslur sjóðsins fyrir árið 2009. Þar gerði sjóðurinn ráð fyrir að
gefa út íbúðabréf að upphæð 7-9 milljarða á þriðja ársfjórðungi ársins.
Sjóðurinn hefur ákveðið að ekki verði farið í nein útboð íbúðabréfa á þriðja
ársfjórðungi. Útlán sjóðsins hafa verið minni á þriðja ársfjórðungi en gert var
ráð fyrir og hefur lausafjárstaða sjóðsins verið góð á tímabilinu. 

Endurskoðaðar áætlanir sjóðsins verða birtar í 41. viku ársins 2009.