2014-02-10 21:48:53 CET

2014-02-10 21:49:25 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
FAST-1 slhf. - Fyrirtækjafréttir

Nánari upplýsingar um kaup FAST-1 slhf. á HTO ehf.


Við kaup FAST-1 slhf. á HTO ehf.  tæplega fimmfaldast verðmæti fjárfestingaeigna
FAST-1 og væntar tekjur aukast ennfremur allt að fimmfalt.

HTO ehf. er eigandi að eignunum við Borgartún 12-14 og Katrínartún 2 og er
heildarflatarmál eignanna tæplega 57 þúsund fermetrar að bílastæðakjallara
meðtöldum, en fyrir kaupin voru alls rúmlega 17 þúsund fermetrar í eigu FAST-1.

Alls eru rúmlega 30 leigutakar í eignum HTO ehf. en fyrir kaupin voru 6
leigutakar í fjórum eignum FAST-1.   Helstu leigutakar hjá HTO ehf. eru meðal
annars Reykjavíkurborg, Reiknistofa bankanna, Fjármálaeftirlitið og Olís.

Frekari upplýsingar veitir Haukur Skúlason, stjórnarformaður FAST-1, s:
844 4778 og haukurs@islandssjodir.is




[HUG#1760666]