|
|||
2014-04-10 19:00:19 CEST 2014-04-10 19:01:03 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf ISLA CB 19Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist viðskiptavakt með ISLA CB 19, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20 m. kr. að nafnverði. MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 0,8%. Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag. Viðskiptavaktin gildir frá og með föstudeginum 11. apríl 2014. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Tinna Molphy, tinna.molphy@islandsbanki.is og í síma 440 3187 / 844 3187. * Upplýsingafulltrúi - Dögg Hjaltalín, dogg.hjaltalin@islandsbanki.is og í síma 440 3925. [HUG#1776558] |
|||
|