2008-04-23 11:28:25 CEST

2008-04-23 11:29:08 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Össur hf. - Fyrirtækjafréttir

Össur hf. semur við Saga Capital um viðskiptavakt



Össur hf. hefur samið við Saga Capital Fjárfestingarbanka um að Saga
Capital annist viðskiptavakt með hlutabréf Össurar fyrir eigin
reikning Saga Capital. Í samningi um viðskiptavakt felst að Saga
Capital setur daglega fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf Össurar í
því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði
með skilvirkum og gagnsæjum hætti. Tilboðin eru sett fram í
viðskiptakerfi Nasdaq OMX, áður en markaður er opnaður og skulu ekki
gilda lengur en innan dagsins.
 
Skilmálar viðskiptavaktasamningsins eru eftirfarandi:
-   Saga Capital skuldbindur sig til að setja daglega fram kaup- og
sölutilboð í hlutabréf Össurar að lágmarki kr. 200.000 að nafnverði á
verði sem Saga Capital ákveður í hvert skipti.
-   Hámarksmunur á kaup- og sölutilboðum skal ekki vera meiri en
1,25%
-   Frávik frá síðasta viðskiptaverði skal ekki vera meira en 2,0%.
-   Hámarksfjárhæð heildarviðskipta dag hvern skal vera kr. 150
milljónir að markaðsvirði.
 
Saga Capital mun hefja viðskiptavaktina frá og með deginum í dag,
miðvikudegi, 23. apríl 2008.