|
|||
2015-02-09 20:24:12 CET 2015-02-09 20:25:13 CET REGULATED INFORMATION Marel hf. - FyrirtækjafréttirMarel – Veitingu kauprétta lokiðMeð tilvísun til tilkynningar Marel frá 3. desember sl. varðandi veitingu kauprétta til framkvæmdastjórnar félagsins, að forstjóra félagsins undanskildum, sem sjá má hér staðfestist hér með að í dag 9. febrúar 2015, hefur verið gengið frá kaupréttarsamningum á grundvelli þessa við hvern og einn meðlim framkvæmdastjórnarinnar. Eins og greint var frá í tilkynningunni fær hver og einn kaupréttarhafi sama magn kauprétta eða 225 þúsund. Nánari upplýsingar um meginefni og helstu skilmála kaupréttarsamninganna sem hafa nú verið samþykktir af kaupréttarhöfum má finna í fyrrnefndri tilkynningu. |
|||
|