2014-07-02 20:41:34 CEST

2014-07-02 20:42:07 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Fjarskipti hf. - Fyrirtækjafréttir

Fjarskipti hf.: Ákvörðun PFS í máli Vodafone og Nova


Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur heimilað Vodafone og Nova að samnýta
tíðniheimildir, komi til stofnunar nýs rekstrarfélags um farsímakerfi
fyrirtækjanna. Samanber fyrri tilkynningu Fjarskipta hf., dags. 12. nóvember
2013, hefur um hríð verið stefnt að stofnun slíks félags en sótt var um leyfi
til rekstursins til bæði PFS og Samkeppniseftirlitsins.

Ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins er nú beðið. Í kjölfar hennar verður ákveðið
hvort af stofnun samrekstrarfélagsins verður.

Nánari upplýsingar verða veittar eftir því sem málinu vindur fram.




[HUG#1812031]