|
|||
2015-05-06 18:19:28 CEST 2015-05-06 18:20:21 CEST REGULATED INFORMATION Íslandsbanki hf. - FyrirtækjafréttirIslandsbanki hf. : MP banki annast viðskiptavakt með sértryggð skuldabréf ISLA CBI 26Íslandsbanki hf. hefur samið við MP banka um að hinn síðarnefndi annist viðskiptavakt með ISLA CBI 26, útgefnum sértryggðum skuldabréfum (e. Covered Bonds) Íslandsbanka. Í því felst að setja fram daglega kaup- og sölutilboð í bréfin, áður en markaður er opnaður, að lágmarki 20 m.kr. að nafnverði. MP banki mun endurnýja tilboð sín innan 15 mínútna frá því að tilboði hefur verið tekið. Tilboðin gilda aðeins innan dags og hámarksmunur kaup- og sölutilboða ákvarðast af verði gildra tilboða og má vera 1,15%. Eigi viðskiptavakt MP banka viðskipti á einum degi fyrir 60 m.kr. að nafnvirði er honum heimilt að hætta framsetningu tilboða fram á næsta viðskiptadag. Viðskiptavaktin gildir frá og með fimmtudeginum 7. maí 2015. Nánari upplýsingar veita: * Fjárfestatengill - Guðbjörg Birna Björnsdóttir, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4752/ 844 4752. * Upplýsingafulltrúi - Guðný Helga Herbertsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 844 3678. [HUG#1919507] |
|||
|