2016-05-19 18:03:25 CEST

2016-05-19 18:03:25 CEST


REGLAMENTUOJAMA INFORMACIJA

Islandų Anglų
Íbúðalánasjóður - Fyrirtækjafréttir

Mánaðarskýrsla Íbúðalánasjóðs apríl 2016


Vanskil einstaklinga lækka

Vanskil einstaklinga halda áfram að dragast saman. Í lok apríl nam fjárhæð
vanskila útlána til einstaklinga 2,4 milljörðum króna og var undirliggjandi
lánavirði 23,5 milljarðar króna eða um 4,75% útlána sjóðsins til einstaklinga.
Sambærilegt hlutfall í síðasta mánuði var 5,2%. Heildarvanskil bæði
einstaklinga og lögaðila ná samtals til 5,8% lánasafnsins, en sambærilegt
hlutfall í apríl 2015 var 8,3%. Hlutfall undirliggjandi lánavirðis í vanskilum
lækkaði um samtals 2,7 milljarða króna milli mánaða. 

Sala íbúða í eigu sjóðsins gengur vel

Sjóðurinn seldi samtals 204 fullnustueignir í mánuðinum.  Til viðbótar þeim
eignum sem seldar voru hefur Íbúðalánasjóður samþykkt kauptilboð í 315 eignir
og vinna nú tilboðsgjafar að fjármögnun þeirra. Í lok mánaðar átti
Íbúðalánasjóður 1.118 fullnustueignir samanborið við 1.348 eignir í ársbyrjun.
Sjóðurinn hefur selt 337 eignir á árinu sem er sambærilegt við sama tímabil
árið 2015 þegar seldar voru 342 eignir. 

Ítarlegri umfjöllun má lesa í meðfylgjandi mánaðarskýrslu