2016-05-20 11:46:50 CEST

2016-05-20 11:46:50 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Fyrirtækjafréttir

Áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta Akureyrarbæjar batnar um 330 milljónir


Tillögur aðgerðahóps um framtíðarrekstur Akureyrarbæjar voru samþykktar á fundi
bæjarráðs í gær, fimmtudaginn 19. maí. Samkvæmt tillögum hópsins, auk annarra
breytinga, verður áætluð rekstrarniðurstaða A-hluta sveitarfélagsins fyrir
yfirstandandi ár 330 milljónum króna betri en gert var ráð fyrir í upphaflegri
fjárhagsáætlun bæjarfélagsins fyrir árið 2016. 

Í aðgerðahópnum sem hóf störf í byrjun janúar sátu oddvitar allra flokka sem
eiga fulltrúa í bæjarstjórn, auk bæjarstjóra og fjármálastjóra bæjarins. Hópnum
var ætlað að leita leiða til að draga úr rekstrarhalla þegar á þessu ári og að
leggja til aðgerðir sem mæta áætlaðri hagræðingu næstu ára, auka jafnvægi í
rekstri sveitarfélagsins og stefna að sjálfbærum rekstri A-hluta
Akureyrarbæjar. 

Aðgerðahópurinn lagði tillögur sínar fram eftir að hafa rýnt í rekstur allra
málaflokka sveitarfélagsins með það að leiðarljósi að draga sem minnst úr
grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins. Lítið verður dregið úr framlögum
bæjarins til fræðslumála, eða um tæplega hálft prósent á árinu 2016 og áætluð
hagræðing í félagsþjónustu nemur 1,6% á árinu 2016 frá upphaflegri áætlun. 

„Góð samvinna allra framboða einkenndi vinnu aðgerðahópsins og var lykillinn að
þeirri sátt sem náðist um aðgerðirnar. Samhliða þeim aðgerðum sem gripið er til
á yfirstandandi ári er lögð fram aðgerðaáætlun sem miðar að því að bæta
framtíðarrekstur sveitarfélagsins. Vinna aðgerðahópsins hefur líka að mínu mati
aukið yfirsýn okkar bæjarfulltrúa og er grunnur fyrir markvissari áætlanir og
vonandi betri rekstur til lengri tíma litið,“segir Guðmundur Baldvin
Guðmundsson, formaður bæjarráðs Akureyrarbæjar. 

Aðgerðahópurinn vann tillögur sínar í samstarfi við embættismenn, aðra
stjórnendur og nefndir sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tillögur hópsins
fyrir yfirstandandi ár komi til framkvæmda á næstu dögum, eftir fundi með öllum
fastanefndum og stjórnendum Akureyrarbæjar. 



Nánari upplýsingar veitir:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, formaður bæjarráðs, sími 822 1501.