2011-11-11 12:45:44 CET

2011-11-11 12:46:48 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Lánamál ríkisins - Fyrirtækjafréttir

Niðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 12 0215 og RIKV 12 0515


Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 12 0215 og RIKV 12 0515 með
tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. 

Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama
verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið.
Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar
miðað við 360 daga ár (Actual/360). 

                    Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar:

RIKV 12 0215:

Alls bárust 21 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 19.550 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 18.600 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,125 (flatir
vextir 3,45%). 

RIKV 12 0515:

Alls bárust 13 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 3.350 m.kr. að nafnverði.
Tilboðum var tekið fyrir 2.100 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,511 (flatir
vextir 2,99%).