|
|||
2015-01-13 12:45:00 CET 2015-01-13 12:45:01 CET REGULATED INFORMATION Lánamál ríkisins - FyrirtækjafréttirNiðurstaða útboðs ríkisvíxla RIKV 15 0415 OG RIKV 15 0715Útboð á ríkisvíxlum í flokkum RIKV 15 0415 og RIKV 15 0715 með tilboðsfyrirkomulagi fór fram hjá Lánamálum ríkisins kl. 11:00 í dag. Útboðinu var þannig háttað að öll samþykkt tilboð buðust bjóðendum á sama verði. Lægsta samþykkta verð (hæsta ávöxtunarkrafa) ákvarðaði söluverðið. Vaxtaprósenta er reiknuð út miðað við flata vexti og dagar taldir sem raundagar miðað við 360 daga ár (Actual/360). Helstu niðurstöður útboðsins eru þessar: RIKV 15 0415: Alls bárust 6 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 8.650 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 8.050 m.kr. að nafnverði á verðinu 99,047 (flatir vextir 3,85%). RIKV 15 0715: Alls bárust 4 gild tilboð í flokkinn að fjárhæð 560 m.kr. að nafnverði. Tilboðum var tekið fyrir 360 m.kr. að nafnverði á verðinu 98,125 (flatir vextir 3,80%). |
|||
|