2014-04-10 14:37:28 CEST

2014-04-10 14:38:30 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Akureyrarbær - Ársreikningur

Ársreikningar Akureyrarbæjar 2013


Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og varð rekstrarafgangur umfram
áætlanir. Skuldir lækkuðu um 950 milljónir króna. Ársreikningar fyrir árið 2013
voru lagðir fram í bæjarráði í dag. Samkvæmt sveitarstjórnarlögum skal fjalla
um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn og verður hann til
umfjöllunar í bæjarstjórn Akureyrar 15. apríl  og 6. maí nk. 

Ársreikningurinn er settur fram samkvæmt reikningsskilum sveitarfélaga.
Starfseminni er skipt upp í tvo hluta, A-hluta annars vegar og B-hluta hins
vegar. Til A-hluta telst starfsemi sem að hluta eða öllu leyti er fjármögnuð
með skatttekjum. Um er að ræða Aðalsjóð, Fasteignir Akureyrarbæjar,
Framkvæmdamiðstöð og Eignasjóð gatna. Til B-hluta teljast fjárhagslega
sjálfstæð fyrirtæki sem að hálfu eða meirihluta eru í eigu sveitarfélagsins en
rekstur þeirra er að stofni til fjármagnaður með þjónustutekjum. Fyrirtækin
eru: Félagslegar íbúðir Akureyrarbæjar, Strætisvagnar Akureyrabæjar,
Öldrunarheimili Akureyrabæjar, Framkvæmdasjóður Akureyrarbæjar, Fráveita
Akureyrarbæjar,  Bifreiðastæðasjóður Akureyrabæjar, Hafnarsamlag Norðurlands,
Norðurorka hf, Heilsugæslustöðin á Akureyri, Byggingasjóður
Náttúrufræðistofnunar og Gjafasjóður Öldrunarheimila Akureyrarbæjar. 



Rekstur Akureyrarbæjar gekk vel á árinu og er heildarniðurstaða ársins í
meginatriðum eins og fjárhagsáætlun ársins gerði ráð fyrir. Rekstrarniðurstaða
samstæðunnar var jákvæð um 950 milljónir króna en áætlun hafði gert ráð fyrir
534 milljóna króna rekstarafgangi á árinu. Fráveita Akureyrar var færð til
Norðuorku Hf í árslok. Það myndaði 1.491 millj. króna söluhagnað í A-hluta, en
hafði engin áhrif rekstur samstæðunnar. Samkvæmt yfirliti um sjóðstreymi nam
veltufé frá rekstri 2.518,3 millj. kr. sem er 75 millj. kr. minna en áætlun
hafði gert ráð fyrir og 363 millj. kr. hærri en árið áður.  Handbært fé frá
rekstri nam 2.581,6 millj. kr. Fjárfestingarhreyfingar námu samtals 1.567,5
millj. kr. Fjármögnunarhreyfingar námu samtals 1.470 millj. kr. Afborgun
langtímalána nam 1.630 millj. kr. en ný langtímalán námu 159 millj. kr. Lækkun
á handbæru fé á árinu nam 455,8 millj. kr. og nam handbært fé sveitarfélagsins
í árslok 1.832,6 millj. kr. 



Heildarlaunagreiðslur án launatengdra gjalda hjá samstæðunni voru 7.777.260
þúsundir króna. Fjöldi stöðugilda var að meðaltali 1.556. Laun og launatengd
gjöld sveitarfélagsins í hlutfalli við rekstrartekjur þess voru 52,4%. Annar
rekstrarkostnaður var 30,0% af rekstrartekjum. Skatttekjur sveitarfélagsins
voru 565 þús. kr. á hvern íbúa en tekjur samtals 1.037 þús. kr. á hvern íbúa.
Árið 2012 voru skatttekjurnar 525 þús. kr. á hvern íbúa og heildartekjurnar 969
þús kr. 



Samkvæmt efnahagsreikningi eru eignir sveitarfélagsins bókfærðar á 38.875,4
millj. kr., þar af eru veltufjármunir 3.995,6 millj. kr. Skuldir
sveitarfélagsins með lífeyrisskuldbindingum nema samkvæmt efnahagsreikningi
23.346,6 millj. kr., þar af eru skammtímaskuldir 3.341millj. kr. Fjárhagur
Akureyrarbæjar er traustur og nam skuldaviðmið samkvæmt reglum Eftirlitsnefndar
með fjármálum sveitarfélaga 112% en var 124% árið áður. 



Veltufjárhlutfallið er 1,20 í árslok en var 1,28 árið áður. Bókfært eigið fé
nemur 15.528,8 millj. kr í árslok. Eiginfjárhlutfall er 40,0% af
heildarfjármagni en var 37% árið áður. 







Nánari upplýsingar veitir Dan Brynjarsson, Fjármálastjóri, í síma 460 1000.