2008-06-04 11:26:53 CEST

2008-06-04 11:27:55 CEST


Islandic English
Skipti hf. - Yfirtökutilboð

- Innlausn á hlutum í Skiptum


Exista hf., kt. 610601-2350, Ármúla 3, Reykjavík, („Exista“) og stjórn Skipta
hf., kt. 460207-0880, Ármúla 25, Reykjavík, („Skipti“) hafa samþykkt að aðrir
hluthafar í Skiptum skuli sæta innlausn Exista á hlutum sínum, sbr. 1. mgr.
110. gr. laga um verðbréfaviðskipti nr. 108/2007. 

Exista og dótturfélög þess eiga samtals 99,22% hlutafjár í Skiptum og ráða yr
samsvarandi atkvæðisrétti. Innlausnin tekur til allra annarra hluthafa Skipta
sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok dags 2. júní 2008. Þeim hluthöfum
hefur verið send þessi tilkynning, auk þess sem hún er birt í dagblöðum í
samræmi við samþykktir Skipta um boðun aðalfundar, sbr. 1. mgr. 110. gr. laga
nr. 108/2007. 

Hluthafar í Skiptum, sem innlausnin tekur til, eru hvattir til að framselja
Exista hluti sína í Skiptum innan 4 vikna frá dagsetningu þessarar
tilkynningar. 

Innlausnarverðið er 6,64 kr. fyrir hvern hlut í Skiptum. Greitt verður fyrir
hlutina með hlutum í Exista þar sem hver hlutur í Exista er verðlagður á 10,1
krónu. Er um að ræða sama verð og endurgjald og Exista bauð hluthöfum Skipta í
yfirtökutilboði sem lauk 26. maí 2008. Greiðslan verður innt af hendi 2. júlí
2008. 

Til að framselja Exista hluti sína í Skiptum þurfa hluthafar að fylla út
framsalseyðublað sem þeim hefur verið sent með þessari tilkynningu. Rétt
útfyllt framsalseyðublað verður að berast Fyrirtækjaráðgjöf Kaupþings banka
hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík, fyrir kl. 12 á hádegi miðvikudaginn 2. júlí
2008. 

Hafi hlutir í Skiptum ekki verið framseldir til Exista í samræmi við
framangreint, verður andvirði hlutanna í Skiptum, þ.e. hlutir í Exista, flutt
inn á vörslusafn viðkomandi hluthafa þar sem hlutir hans í Skiptum eru í
vörslu. Frá þeim tíma telst Exista réttur eigandi viðkomandi hluta í Skiptum,
sbr. 2. mgr. 110. gr. laga nr. 108/2007. 

Kaupþing banki hf. hefur umsjón með innlausninni fyrir hönd Exista. Nánari
upplýsingar veita ráðgjafar bankans í síma 444-7000.

Vakin er sérstök athygli hluthafa á því að Kaupþingi banka hf. er óskylt að
meta hvort viðskipti í tengslum við innlausnina séu viðeigandi fyrir þá og þeir
njóta því ekki þeirrar verndar sem í slíku mati felst samkvæmt 16. gr. laga nr.
108/2007. Er hluthöfum bent á að leita sér sérfræðiaðstoðar vegna viðskiptanna.