2016-08-29 15:35:18 CEST

2016-08-29 15:35:18 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Jeratún ehf. - Ársreikningur

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. 1. janúar – 30. júní 2016


Árshlutareikningur Jeratúns ehf. er gerður í samræmi við alþjóðlegan
reikningsskilastaðal um árshlutareikninga, IAS 34, eins og hann hefur verið
samþykktur af Evrópusambandinu. 

Árshlutareikningur Jeratúns ehf. fyrir tímabilið 1. janúar til 30. júní 2016
var staðfestur af stjórn félagsins í dag, 29. ágúst 2016. 

Jeratún ehf. er einkafyrirtæki í eigu Grundarfjarðarbæjar, Helgafellssveitar,
Snæfellsbæjar og Stykkishólmsbæjar og bera þau ábyrgð á skuldbindingum þess.
Hlutverk félagsins er bygging og rekstur skólahúsnæðis Fjölbrautaskóla
Snæfellinga í Grundarfirði. Starfsemi félagsins flokkast því undir að vera á
vettvangi sveitarfélaga. 

Hagnaður félagsins á fyrri hluta ársins 2016 nam 12.815 þús. kr. og í lok
tímabilsins var eigið fé jákvætt um sem nam 113.993 þús. kr. samkvæmt
árshlutareikningi. Á hluthafafundi í félaginu á tímabilinu var hlutafé aukið um
8 milljónir kr. 

Stjórn félagsins vekur athygli á áritun óháðs endurskoðanda sem er með
ábendingu. 

Lántaka félagsins er vegna fjármögnunar framkvæmda við Fjölbrautaskóla
Snæfellinga. Sveitarfélögin ásamt ríkinu greiða húsaleigu sem á að standa undir
afborgunum og vöxtum af lánum. Í lok tímabilsins námu eftirstöðvar lána um 330
millj. kr. og voru eftirstöðvar í skilum. Sveitarfélögin bera hlutfallslega
ábyrgð á greiðslu lánanna. 

Félagið er með leigusamning við menntamálaráðuneytið og sveitarfélögin á
Snæfellsnesi vegna fasteignarinnar til 31. júlí 2024. Núverandi leigugreiðslur
eru 62.531 þús. kr. á ársgrundvelli og eru verðtryggðar með vísitölu
neysluverðs. 

Sturla Böðvarsson, er stjórnarformaður Jeratúns ehf. og veitir frekari
upplýsingar um starfsemi þess og stöðu.