2016-08-29 18:40:13 CEST

2016-08-29 18:40:13 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Kvika banki hf. - Árshlutareikningur - 6 mán.

Kvika banki hf.: Afkoma fyrri hluta 2016


Á stjórnarfundi þann 29. ágúst 2016, samþykkti stjórn og forstjóri
árshlutareikning samstæðu Kviku banka hf. fyrir tímabilið 1. janúar 2016 til
30. júní 2016.



Sigurður Atli Jónsson, forstjóri Kviku:

"Ánægjulegt er að kynna uppgjör Kviku fyrir fyrri hluta árs 2016. Kvika hefur
náð þeim rekstrarlegu markmiðum sem sett voru við sameiningu Straums
fjárfestingabanka og MP banka. Að baki er vel heppnaður samruni
sem grundvallaðist á virðingu og samvirkni þeirra sem að honum komu. Afkoma
Kviku er góð og í samræmi við áætlanir, eftir aðeins eitt ár í rekstri.
Fjárhagslegur styrkur bankans er mikill. Við byggjum á þeim grunni og nýtum
þekkingu og færni starfsfólks Kviku til að sækja fram.

Það er ánægjulegt að Ísland verði á ný hluti af alþjóðlegum fjármálamörkuðum.
Kvika er tilbúin fyrir þær breytingar, enda hefur bankinn verið með umsvifamikla
erlenda fjárfestingaþjónustu fyrir viðskiptavini sína undanfarin ár. Þegar vel
er að verkum staðið og hugsað er til lengri tíma, er ekki hægt annað en að horfa
jákvætt til morgundagsins."



Góð afkoma í takt við áætlanir

Hagnaður Kviku fyrstu sex mánuði ársins 2016 nam 378 milljónum króna. Arðsemi
eiginfjár var 12,3%. Hreinar rekstrartekjur námu 2.164 milljónum króna á
tímabilinu samanborið við 2.535 milljónir króna á seinni helmingi 2015.
Þóknanatekjur lækka nokkuð milli tímabila sem skýrist einkum af árstíðabundnum
sveiflum í tilteknum tekjuliðum.

Rekstrarkostnaður nam 1.668 milljónum króna á fyrri hluta árs 2016.
Rekstrarkostnaður lækkaði í takt við áætlun um 13% frá seinni helmingi árs 2015
að teknu tilliti til samrunakostnaðar á fyrra tímabili.

Í lok júní 2016 námu heildareignir samstæðu Kviku 77.825 milljónum króna
samanborið við 61.614 milljónir króna í árslok 2015 og nemur hækkunin 26% á
tímabilinu. Útlán til viðskiptavina námu 23 milljörðum króna í lok júní 2016.
Almenn innlán og peningamarkaðsinnlán jukust verulega um rúma 14 milljarða
króna, eða 30%, á árinu. Á sama tíma hefur bankinn bætt kjör sín á
fjármagnsmarkaði.

Eiginfjárhlutfall í lok júní var 18,0% samanborið við 23,5% í árslok 2015.
Lækkunin er í samræmi við áætlun og skýrist að miklu leyti af lækkun hlutafjár
sem samþykkt var á hlutahafafundi fyrr á árinu. Lausafjárstaða bankans er sterk,
LCR 211%, og bankinn er vel í stakk búinn til þess að takast á við mögulegt
fjárútflæði í kjölfar afnáms fjármagnshafta.



Það helsta úr starfsemi bankans

  * Kvika er fremst í flokki íslenskra banka og fjármálafyrirtækja á sviði
    eignastýringar árið 2016, að mati breska fjármálatímaritsins World Finance.
    Tímaritið útnefnir árlega fyrirtæki fyrir framúrskarandi árangur og var
    þetta þriðja árið í röð sem bankinn fær viðurkenninguna.
  * Kvika var umsvifamest í viðskiptum með skuldabréf á Nasdaq Iceland á fyrri
    hluta árs 2016. Heildarvelta Kviku með skuldabréf nam 329 milljörðum króna
    eða um 22% af heildarviðskiptum tímabilsins.
  * Kvika hefur undirritað samstarfssamning við tvö alþjóðleg
    eignastýringarfyrirtæki, T. Rowe Price og Wellington Management, um sölu og
    dreifingu á sjóðum þeirra. Þessir samningar eru til viðbótar við 12 ára
    samvinnu Kviku við Credit Suisse.
  * Kvika rannsakaði þjóðhagslega hagkvæmni sæstrengs til Bretlands fyrir
    atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið. Skýrslan var unnin af sérfræðingum
    Kviku í samstarfi við Pöyry, sem er eitt virtasta ráðgjafafyrirtæki Evrópu á
    sviði orkumála.
  * Kvika er viðurkenndur ráðgjafi Iceland Seafood International á First North
    markaðnum, sem er norrænn hliðarmarkaður fyrir hlutabréfaviðskipti.
  * Kvika var ráðgjafi við sölu á 40% hlut í Iceland Seafood International.
  * Kvika var ráðgjafi eiganda Húsafells við fjármögnun ferðaþjónustu í
    Húsafelli.
  * Júpíter rekstrarfélag hf., dótturfélag Kviku, stofnaði tvo sjóði í sérhæfðum
    fjárfestingum á fyrri hluta ársins en þar á meðal var JR Veðskuldabréf I sem
    sérhæfir sig í kaupum á veðskuldabréfum fyrirtækja.



Kvika banki hf.

Kvika er sérhæfður fjárfestingabanki sem sinnir þörfum viðskiptavina á
afmörkuðum syllum með fagþekkingu og sérhæfðu vöruframboði. Burðarás Kviku er
öflug eignastýring og veitir bankinn sparifjár- og innlánseigendum alhliða
fjármálaþjónustu. Hjá Kviku starfar samhentur hópur 87 sérfræðinga sem nær
árangri í krafti menntunar, markaðsþekkingar og víðtækrar reynslu. Forstjóri er
Sigurður Atli Jónsson og formaður stjórnar er Þorsteinn Pálsson. Eignarhald
Kviku er gagnsætt og er hann eini bankinn sem er að fullu í eigu einkaaðila s.s.
lífeyrissjóða, fyrirtækja og einstaklinga. Nánar á: www.kvika.is.


[]