2008-10-07 13:29:00 CEST

2008-10-07 11:29:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic English
Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf. - Fyrirtækjafréttir

- Að gefnu tilefni


Vegna lagafrumvarps þess sem lagt var fram og samþykkt á Alþingi í gær, þar sem
eftirlitsaðilum eru veittar víðtækar heimildir til að grípa inn í rekstur
fjármálafyrirtækja, telur Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur)
rétt að eftirfarandi komi fram: 


Straumur hefur látið yfirvöldum í té ítarlegar upplýsingar um fjárhagslega
stöðu bankans. Bankanum er ekki kunnugt um að staða hans þyki gefa tilefni til
afskipta af því tagi sem heimiluð eru í ofangreindum lögum. Straumur mun hér
eftir sem hingað til veita eftirlitsaðilum allar þær upplýsingar sem óskað er
eftir. 
 

"Fjárhagsleg staða Straums er sterk, eiginfjárhlutfallið hátt og umtalsvert
lausafé fyrir hendi. Við höldum því áfram að vinna að þeim markmiðum sem við
höfum sett okkur, þrátt fyrir það mikla umrót sem orðið hefur að undanförnu,"
segir William Fall, forstjóri Straums. 


Á þessu stigi er ekki unnt að áætla hvaða áhrif hugsanlegt inngrip yfirvalda í
starfsemi annarra fjármálafyrirtækja kynni að hafa á Straum. 
 

Straumur ætlar sér að standa við kaupin á Landsbanki Securities (UK) Limited,
Landsbanki Kepler og Merrion Landsbanki og gerir ráð fyrir að þau gangi eftir
samkvæmt áætlun. 
 

Öll innlán hjá Straumi á Íslandi eru að fullu tryggð af hálfu íslenskra
stjórnvalda. Innlán hjá útibúum og dótturfélögum Straums í Danmörku, Tékklandi
og Finnlandi njóta sömu trygginga og gilda almennt í þeim löndum. 

 

Nánari upplýsingar veitir:

Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi

Sími: 858 6778

Netfang: olafur.gudnason@straumur.net