2013-04-12 17:33:00 CEST

2013-04-12 17:34:01 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Reykjanesbær - Ársreikningur

Ársreikningur Reykjanesbæjar 2012


Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs og samstæðu umfram væntingar


Rekstrarafgangur í bæjarsjóði

Rekstur bæjarsjóðs Reykjanesbæjar gekk vel á árinu 2012. Bæjarsjóður, sem
sinnir öllum almennum rekstri bæjarins, skilar rekstrarafgangi fyrir afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) um 889 milljónir króna sem er um 10,21% af tekjum.
Eftir afskriftir og fjármagnsliði er afgangur af rekstri um 708 milljónir króna
sem er um 8,14% af tekjum. Þetta er umfram væntingar þar sem fjárhagsáætlun
2012 ásamt viðaukum gerði ráð fyrir 191 milljón króna í rekstrarafgang
bæjarsjóðs. 

Eignir bæjarsjóðs eru bókfærðar á 29.805 milljónir króna, þar af eru
veltufjármunir 2.469 milljónir kr. Skuldir bæjarsjóðs með
lífeyrisskuldbindingum og leiguskuldbindingum eru 22.334 milljónir króna, þar
af eru skammtímaskuldir 2.366 milljónir króna. 

Vaxtaberandi langtímaskuldir bæjarsjóðs við lánastofnanir eru 2.852 milljónir
króna, fjármagnstekjuskattur er 704 milljónir króna og heildar
leiguskuldbindingar eru 13.618 milljónir króna. Reykjanesbær greiddi niður á
árinu 2012 eina erlenda lánið sitt og er því ekki lengur með neinar erlendar
skuldbindingar. Samtals lækkuðu skuldir og skuldbindingar bæjarsjóðs um 3.488
milljónir króna milli ára. 

Hreint veltufé frá rekstri er um 358 milljónir króna. Handbært fé frá rekstri
er um 300 milljónir króna og nam hækkun þess um 241 milljón króna milli ára. 

Fjárfestingarhreyfingar fyrir bæjarsjóð eru 2.128 milljónir króna og
fjármögnunarhreyfingar eru 2.423 milljónir króna á árinu. Fyrir bæjarsjóð voru
engin ný lán tekin né nein endurfjármögnun á árinu 2012. 

Veltufjárhlutfall er 1,04 og hækkar úr 0,50 frá árinu 2011.

Bókfært eigið fé hjá bæjarsjóði er 7.472 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall
bæjarsjóðs hækkar á milli ára úr 20,76% í 25,07%. 



Rekstrarhalli samstæðu lægri en fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir

Þrátt fyrir að enn séu vandamál með fjármögnun vegna framkvæmda við
Helguvíkurhöfn og taprekstur Reykjaneshafnar um 667 milljónir króna er
rekstrarniðurstaða samstæðu betri en gert var ráð fyrir. Rekstrarafgangur
samstæðu fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) er um 2.803 milljónir króna
sem er um 20,15% af tekjum. Eftir afskriftir og fjármagnsliði er tap af rekstri
samstæðu um 433 milljónir króna. Þetta er umfram væntingar þar sem í
fjárhagsáætlun 2012 var gert ráð fyrir 492 milljón króna rekstrarhalla
samstæðu. Það er ánægjulegt að veltufjárhlutfall samstæðu hækkar úr 0,73 í 1,59
milli ára og eiginfjárhlutfall samstæðu hækkar úr 16,41% í 17,12%.