2013-10-24 13:38:04 CEST

2013-10-24 13:39:05 CEST


REGULATED INFORMATION

Islandic
Hagar hf. - Ársreikningur

Hagar hf. árshlutauppgjör Q2 / mars - ágúst 2013


Árshlutareikningur Haga fyrir annan ársfjórðung 2013/14 var samþykktur af
stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 24. október 2013. 
Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars 2013 til 31. ágúst 2013.
Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga
þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS).
Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, KPMG ehf. 



Helstu upplýsingar:

  -- Hagnaður tímabilsins nam 1.973 millj. kr. eða 5,2% af veltu.
  -- Vörusala tímabilsins nam 37.794 millj. kr.
  -- Framlegð tímabilsins var 24,1% og lækkar um 0,1% frá fyrra ári.
  -- Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) nam 3.003
     millj. kr.
  -- Heildareignir samstæðunnar námu 26.867 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Handbært fé félagsins nam 3.854 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Eigið fé félagsins nam 10.118 millj. kr. í lok tímabilsins.
  -- Eiginfjárhlutfall var 37,7% í lok tímabilsins.

Vörusala tímabilsins nam 37.794 milljónum króna, samanborið við 35.569
milljónir króna árið áður. Söluaukning félagsins er 6,26%. Hækkun 6 mánaða
meðaltals vísitölu neysluverðs milli rekstrarára var 3,69%. Framlegð félagsins
var 9.115 milljónir króna, samanborið við 8.625 milljónir króna árið áður eða
24,1% samanborið við 24,2%, þ.e. framlegð félagsins lækkar um 0,1% milli
tímabila. Rekstrarkostnaður í heild hækkar um 1,8% milli ára en
kostnaðarhlutfallið lækkar úr 17,1% í 16,4%. 



Afkoma fyrir fjármagnsliði, afskriftir og skatta (EBITDA) nam 3.003 milljónum
króna, samanborið við 2.632 milljónir króna árið áður. EBITDA framlegð var
7,9%, samanborið við 7,4% árið áður. 



Hagnaður tímabilsins fyrir skatta nam 2.466 milljónum króna, samanborið við
1.966 milljónir króna árið áður.  Hagnaður eftir skatta nam 1.973 milljónum
króna á tímabilinu, sem jafngildir um 5,2% af veltu. Hagnaður eftir skatta á
fyrra ári var 1.554 milljónir en það jafngildir 27% bata milli ára. 



Heildareignir samstæðunnar í lok tímabilsins námu 26.867 milljónum króna.
Fastafjármunir voru 12.774 milljónir króna og veltufjármunir 14.093 milljónir
króna. Þar af eru birgðir 5.015 milljónir króna en birgðir hafa minnkað
lítillega frá lokum síðasta rekstrarárs. Birgðir á sama tíma í fyrra námu 4.483
milljónum króna. 



Eigið fé félagsins var 10.118 milljónir króna í lok tímabilsins og
eiginfjárhlutfall 37,7%.  Heildarskuldir samstæðunnar voru 16.749 milljónir
króna, þar af voru langtímaskuldir 8.124 milljónir króna. Nettó vaxtaberandi
skuldir félagsins í lok tímabilsins voru 4.268 milljónir króna en 500 milljónir
króna voru greiddar inn á langtímalán félagsins umfram lánssamning á
tímabilinu. 



Handbært fé frá rekstri á tímabilinu nam 2.524 milljónum króna, samanborið við
2.275 milljónir króna á fyrra ári. Fjárfestingarhreyfingar tímabilsins voru 207
milljónir króna og fjármögnunar­hreyfingar 1.410 milljónir króna en á
tímabilinu voru greiddar 586 milljónir króna í arðgreiðslu til hluthafa.
Handbært fé í lok tímabilsins var 3.854 milljónir króna, samanborið við 2.943
milljónir króna árið áður. 



Framtíðarhorfur:

Rekstur félagsins á öðrum ársfjórðungi rekstrarársins 2013/14 var, líkt og
fyrsti ársfjórðungur, umfram áætlanir. Rekstrarniðurstaðan var auk þess betri
en á sama tímabili á fyrra ári. Horfur í rekstri næstu mánaða eru sambærilegar
því sem verið hefur en áframhald verður á vinnu við bætt kostnaðarhlutföll og
hagkvæmari aðfangakeðju. Auk þess mun félagið skoða nýja fjárfestingakosti í
kjarnastarfsemi, nýjar staðsetningar sem og áframhaldandi niðurgreiðslu skulda.
Unnið verður áfram í leigusamningum félagsins með það að markmiði að fækka
fermetrum og gera ákveðnar einingar hagkvæmari. 



Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa:

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Hilton
Reykjavík Nordica, föstudaginn 25. október kl. 8:30, en þar mun Finnur Árnason
forstjóri Haga kynna afkomu félagsins og svara spurningum ásamt stjórnendum
félagsins. 

Kynningarefni fundarins verður aðgengilegt að honum loknum á heimasíðu Haga,
www.hagar.is. 



Fjárhagsdagatal 2013/14:

3. ársfjórðungur (1. mars - 30. nóv): 10. janúar 2014

4. ársfjórðungur (1. mars - 28. feb): 15. maí 2014





Nánari upplýsingar veitir Finnur Árnason, forstjóri félagsins, í síma 530-5500.