2013-02-28 09:55:47 CET

2013-02-28 09:56:47 CET


REGULATED INFORMATION

Islandic
Spölur ehf. - Ársreikningur

Ársuppgjör Spalar hf. 1. janúar 2012 til 31. desember 2012


Ársreikningur félagsins fyrir árið í ár nær yfir tímabilið 1. janúar 2012 til
31. desember 2012. 
Ársreikningur félagsins fyrir árið 2011 náði yfir tímabilið frá 1. október 2010
til 31. desember 
2011, samanburðarfjárhæðir í rekstrarreikningi og sjóðstreymisyfirliti eru því
ekki alveg 
sambærilegar þar sem þær ná yfir 15 mánaða tímabil. Hagnaður Spalar ehf eftir
skatta fyrir 
tímabilið 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 nam 238 mkr., hagnaður á
rekstrarárinu 1. 
október 2010 til 31. desember 2011 nam 281 mkr. Hagnaður Spalar ehf eftir
skatta á fjórða 
ársfjórðungi félagsins sem er 1. október 2012 til 31. desember 2012 nam 9 mkr.
en á sama tíma árið á undan nam hagnaður félagsins 40 mkr. Spölur er að fullu í
eigu Eignarhaldsfélagsins Spalar hf. 

Greiðsluflæðið gefur hins vegar betri mynd af gangi félagsins þar sem verðbætur
vegna 
vísitöluhækkana lána dreifast til greiðslu fram til loka lánstímans, þ.e. 2018.
Greiðslugeta 
félagsins undanfarin 5 ár hefur verið sterk. Um 627 mkr. (2011:655 mkr.) voru
greiddar í 
afborganir og vexti á tímabilinu og nauðsynlegt umframfjármagn var að auki til
staðar 31. 
desember 2012 eins og lánasamningar gera ráð fyrir.

Veggjald ársins nam 1.058 mkr. til samanburðar við 1.209 mkr. árið áður. Hins
vegar er um að 
ræða 12 mánaða veggjald samanborið við 15 mánaða. Veggjald fyrir tímabilið 1.
janúar 2011 til 
31. desember 2011 var að fjárhæð 1.004 mkr. Veggjald hefur því hækkað um 5,4 %
í ár 
samanborið við sama tímabil árið áður.

Rekstrarkostnaður Spalar ehf án afskrifta fyrir tímabilið 1. janúar 2012 til
31.desember 2012 nam 342 mkr. og lækkar um tæpar 25 mkr frá árinu áður þegar
hann nam 367 mkr. Skýrist þessi lækkun fyrst og fremst af því að í
samanburðarfjárhæðum eru 15 mánuðir í rekstrarárinu 
samanborið við 12 mánuði nú. Rekstrarkostnaður fyrir tímabilið 1. janúar 2011
til 31. desember 2011 var að fjárhæð 292 mkr. 

Afskriftir á tímabilinu námu samtals 116 mkr.

Fjármunatekjur og fjármagnsgjöld lækka um 80,8 mkr., en ef borið er saman sama
tímabil árið 
áður er lækkunin milli ára um 16,7 mkr.

Skuldir Spalar ehf lækka úr 4.079 mkr. þann 31. desember 2011 í 3.821 mkr. þann
31. desember 2012. 

Um uppgjörið
Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar, segir að umferð og tekjur séu heldur
meiri en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. 


Tímabilið frá 1. janúar 2012 til 31. desember 2012 er fjórtánda fjárhagsár
félagsins. Á þessu tímabili fóru 1.841 þúsund ökutæki um göngin sem greiddu
veggjald sem er um 0,9% minnkun frá sama tímabili árið áður. Þessi fjöldi
samsvarar því að um 5.031 ökutæki hafi farið um göngin að meðaltali dag hvern. 
Meðaltekjur fyrir hverja ferð um göngin hafa hækkað.
________________________________________________________________________________
_________________ 
Nánari upplýsingar veitir Gylfi Þórðarson, framkvæmdastjóri Spalar ehf, í síma
433 5910.