2008-02-07 18:11:52 CET

2008-02-07 18:12:52 CET


REGLERAD INFORMATION

Isländska Engelska
SPRON Verðbréf hf. - Fyrirtækjafréttir

- Yfirlýsing frá stjórn SPRON hf.


Reykjavík, 7. febrúar 2008

Í tilefni af umfjöllun fjölmiðla um viðskipti innherja með stofnfjárhluti í
SPRON sem áttu sér stað fyrir breytingu SPRON í hlutafélag og skráningu í
Kauphöll Íslands vill stjórn SPRON taka eftirfarandi fram: 

Fjármálaeftirlitið heimilaði ekki birtingu viðskipta innherja í SPRON

Reglur um viðskipti innherja með stofnfjárhluti voru settar að frumkvæði SPRON
þegar verið var að undirbúa stofnun tilboðsmarkaðar með stofnfjárhluti 2004. 
Eins og lög gera ráð fyrir var óskað eftir umsögn Fjármálaeftirlitsins um
stofnun tilboðsmarkaðarins og gerð reglnanna.  Í tillögum stjórnar var meðal
annars lagt til að upplýsingar um viðskipti innherja með stofnfjárbréf yrðu
gerð opinber með sama hætti og slíkar upplýsingar eru gerðar opinberar hjá
skráðum félögum í kauphöll.  Í svari Fjármálaeftirlitsins dagsettu 30. júní
2004 er tekið fram með vísan í 34. gr. kauphallarlaganna „að koma þurfi í veg
fyrir ruglingshættu við skipulegan tilboðsmarkað eða kauphöll, en hætta á
ruglingi getur skapast svo sem með því að birta skipulega upplýsingar um
viðskiptin með sama hætti og kauphöll og skipulegur tilboðsmarkaður gera eða á
nokkurn þann hátt að hætta skapist á ruglingi við slíka starfsemi.“  Varðandi
birtingu viðskipta innherja er síðar sagt í sama bréfi að „það er mat
Fjármálaeftirlitsins að verði upplýsingar birtar um viðskipti þeirra
stofnfjáreigenda sem jafnframt eru fruminnherjar SPRON, með stofnfjárskírteini,
sé með því verið að líkja eftir reglum sem gilda um skráða fjármálagerninga og
er það líklegt til að valda ruglingshættu milli tilboðsmarkaðarins og
kauphallar eða skipulegs tilboðsmarkaðar.“  Jafnframt er sagt síðar í bréfinu:
„Að mati Fjármálaeftirlitsins er fyrirhuguð upplýsingagjöf til þess fallin að
gefa til kynna að verðbréfamarkaðurinn sé skipulagður og er hún því óheimil
skv. 34. gr. kphl.“ 

Af framansögðu má eftirfarandi vera ljóst:

• Vilji stjórnar SPRON stóð alltaf til þess að upplýsingar um viðskipti        
  innherja yrðu opinberar en slíkt var ekki heimilt skv. ofangreindri niðurstöðu
  Fjármálaeftirlitsins. 
• Það er alls kostar rangt sem komið hefur fram í fjölmiðlum að stjórnin hafi
  túlkað afstöðu Fjármálaeftirlitsins. 
• Stjórn SPRON var beinlínis óheimilt að breyta öðruvísi en hún gerði. 

Varðandi viðskipti stjórnarmanna með stofnfjárhluti í SPRON eftir að greint var
opinberlega frá því að félagið hyggði á skráningu í kauphöll vill stjórnin taka
eftirfarandi fram: 

• Viðskipti innherja SPRON fyrir skráningu í Kauphöll Íslands voru heimil þegar
  engar innherjaupplýsingar (verðmótandi upplýsingar)  lágu fyrir líkt og
  tíðkast í reglum um viðskipti innherja í skráðum félögum. 
• Viðskipti stjórnarmanna eftir að ákvörðun stjórnar um skráningu í kauphöll
  var gerð opinber voru í fullkomnu samræmi við lög og reglur. 
• Engar innherjaupplýsingar lágu fyrir eftir að gerð var grein fyrir ákvörðun
  stjórnar 17. júlí 2007. Var innherjum því frjálst að eiga viðskipti með
  stofnfjárhluti fram til 7. ágúst en þá var markaði með stofnfjárhluti lokað og
  undirbúningur hafinn að skráningu SPRON í Kauphöllina. 
• Engin viðskipti áttu sér stað með stofnfjárhluti eftir 7. ágúst.  Viðskipti
  með hlutafé hófust 23. október þegar SPRON var skráð í Kauphöll Íslands. 

Gerð var ítarlega grein fyrir áformum stjórnar SPRON í allri fjölmiðlaumfjöllun
í kjölfar ákvörðunarinnar 17. júlí og þar á meðal að verðmat Capacent á SPRON
væri um 60 milljarðar. Því skal ítrekað að engar innherjaupplýsingar lágu fyrir
eftir að ákvörðun stjórnar var birt þann 17. júlí og þau viðskipti sem áttu sér
stað eftir að gerð var grein fyrir áformum um skráningu í kauphöll voru í fullu
samræmi við lög og reglur. 

Viðskipti stjórnarmanna

Stjórn SPRON var ekki heimilt að birta upplýsingar um viðskipti innherja eins
og fram hefur komið en í ljósi þeirrar umræðu sem átt hefur sér stað er
undirrituðum stjórnarmönnum SPRON ljúft að upplýsa um viðskipti sín á umræddu
tímabili. 

Tveir stjórnarmenn seldu enga stofnfjárhluti á umræddu tímabili, Ari Bergmann
Einarsson sem átti (auk fjárhagslegra tengdra aðila) 110.279.318 stofnfjárhluti
að nafnvirði og Erlendur Hjaltason (auk fjárhagslegra tengdra aðila) sem átti
6.643.332 stofnfjárhluti að nafnvirði. 

Hildur Petersen, stjórnarformaður SPRON, og tengdur aðili seldu á tímabilinu
stofnfjárhluti að nafnvirði kr. 7.201.353. Hluti af þeim var seldur til tengds
aðila eins og áður hefur komið fram.  Eftir söluna áttu Hildur og fjárhagslega
tengdir aðilar kr.19.814.865 stofnfjárhluti að nafnvirði. 

Ásgeir Baldurs seldi stofnfjárhluti að nafnvirði kr. 270.952. Eftir söluna áttu
Ásgeir og fjárhagslega tengdir aðilar kr. 476.901.775 stofnfjárhluti að
nafnvirði. 

Fyrirtæki tengt Gunnari Þór Gíslasyni seldi stofnfjárhluti að nafnvirði kr.
188.657.257 á tímabilinu. Eftir söluna átti fyrirtækið kr. 286.915.556
stofnfjárhluti að nafnvirði. 
Stjórn SPRON vill árétta að allir stjórnarmenn eiga enn í dag meirihluta þeirra
bréfa sem þeir áttu fyrir 7. ágúst, þegar markaði með stofnfjárhluti var lokað.
Einnig að þeir stjórnarmenn sem seldu stofnfjárhluti á þessu tímabili seldu
aðeins hluta af stofnfjáreign sinni í SPRON. Stjórn SPRON hefur vitaskuld fulla
trú á fyrirtækinu og undirstrikar að ástæður þess að stjórnarmenn seldu hluta
af stofnfjáreign sinni á þessu tímabili voru fyrst og fremst persónulegar. 

Hildur Petersen
Ari Bergmann Einarsson
Ásgeir Baldurs
Erlendur Hjaltason
Gunnar Þór Gíslason